
Paris Saint-Germain hefur óskað eftir því að fresta stórleik gegn Lens í frönsku deildinni.
Leikurinn á að fara fram á milli tveggja leikja PSG gegn Liverpool í Meistaradeildinni, og vill félagið fá betri undirbúningstíma.
Lens er hins vegar harðlega á móti og segir slíka ákvörðun senda vafasöm skilaboð um að deildarkeppnin sé sett í annað sæti.
„Það verður að bera virðingu fyrir keppninni,“ sagði í yfirlýsingu félagsins.
PSG bendir á að svona frestanir hafi tíðkast áður til að hjálpa frönskum liðum í Evrópukeppnum og að það gagnist frönskum fótbolta í heild.
Lens er aðeins einu stigi á eftir PSG í toppbaráttunni og því gæti ákvörðunin haft mikil áhrif á titilbaráttuna.
Endanleg ákvörðun er í höndum deildarinnar.