fbpx
Þriðjudagur 24.mars 2026
433Sport

Spænski stjórinn gæti söðlað um innan ensku úrvalsdeildarinnar

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 24. mars 2026 18:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Crystal Palace hefur sett Andoni Iraola, stjóra Bournemouth, á lista yfir mögulega eftirmenn Oliver Glasner.

Glasner hefur þegar staðfest að hann muni yfirgefa Palace í sumar og Iraola er einnig talinn líklegur til að skipta um starfsvettvang þegar samningur hans rennur út.

Iraola hefur vakið athygli fyrir sókndjarfan og skemmtilegan leikstíl hjá Bournemouth og skilaði liðinu í 9. sæti á síðustu leiktíð.

Fleiri nöfn eru í umræðunni, þar á meðal Marco Silva hjá Fulham.

Iraola hefur einnig verið orðaður við endurkomu til Athletic Bilbao, en segist sjálfur ánægður í núverandi starfi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir áhugaverða helgi í enska boltanum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir áhugaverða helgi í enska boltanum
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Furðar sig á ákvörðun Thomas Tuchel í gær – Segir þetta móðgun gagnvart Trent

Furðar sig á ákvörðun Thomas Tuchel í gær – Segir þetta móðgun gagnvart Trent
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Reglum breytt á dögunum – Sá fyrsti ákærður og á yfir höfði sér þunga refsingu

Reglum breytt á dögunum – Sá fyrsti ákærður og á yfir höfði sér þunga refsingu
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Jurgen Klopp segir slúðrið sem hefur verið í gangi tóma þvælu

Jurgen Klopp segir slúðrið sem hefur verið í gangi tóma þvælu