fbpx
Þriðjudagur 24.mars 2026
433Sport

Ráðleggur Bukayo Saka að skipta um stöðu til að finna formið sitt

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 24. mars 2026 12:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jamie Redknapp telur að Bukayo Saka þurfi að breyta stöðu sinni tímabundið til að finna aftur sitt besta form.

Saka hefur átt erfitt uppdráttar frá áramótum og átti dapran leik þegar Arsenal tapaði 2-0 gegn Manchester City í úrslitaleik enska deildabikarsins á Wembley. Hann var einn af nokkrum leikmönnum sem náðu ekki að standa undir væntingum í leiknum.

Redknapp segir að Arsenal þurfi meira frá sínum lykilmönnum ef liðið ætlar að berjast um Englandsmeistaratitilinn. „Þetta er tíminn þar sem stjörnurnar þurfa að stíga upp. Sá leikmaður sem mér finnst ekki vera að spila á sínu besta stigi núna er Bukayo Saka,“ sagði hann.

Hann telur að Saka þurfi að endurheimta sjálfstraust sitt og að breyting á stöðu gæti hjálpað. „Ég vil sjá meira frá honum. Hann hefur verið lykilmaður hjá Arsenal svo oft, en undanfarið hef ég ekki séð þessa sköpun, hugmyndaflug og mörk sem við þurfum frá honum,“ bætti Redknapp við.

Samkeppnin um stöður í liðinu er einnig að aukast, þar sem leikmenn á borð við Max Dowman og Noni Madueke geta einnig spilað á hægri kantinum. Að mati Redknapp þarf Saka því að finna leið til að snúa genginu við sem fyrst.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

United sagt vilja kaupa vonarstjörnu Arsenal í sumar

United sagt vilja kaupa vonarstjörnu Arsenal í sumar
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Reglum breytt á dögunum – Sá fyrsti ákærður og á yfir höfði sér þunga refsingu

Reglum breytt á dögunum – Sá fyrsti ákærður og á yfir höfði sér þunga refsingu
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Gagnrýnin var að buga kynþokkafyllstu konu heims – „Fólk veit ekki hversu mikla vinnu ég legg í þetta“

Gagnrýnin var að buga kynþokkafyllstu konu heims – „Fólk veit ekki hversu mikla vinnu ég legg í þetta“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Sussaði á manninn sem kallaði hann rúnkara – Myndbandið vekur athygli

Sussaði á manninn sem kallaði hann rúnkara – Myndbandið vekur athygli
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Segir að Arteta verði að axla ábyrgð á tapi Arsenal í gær – Skilur ekki þessa ákvörðun

Segir að Arteta verði að axla ábyrgð á tapi Arsenal í gær – Skilur ekki þessa ákvörðun
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum
Viktor Nói í FH
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Leikmenn Arsenal einn af öðrum afboða sig í landsleiki

Leikmenn Arsenal einn af öðrum afboða sig í landsleiki
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Leikmaður Newcastle inn fyrir leikmann Arsenal

Leikmaður Newcastle inn fyrir leikmann Arsenal