fbpx
Þriðjudagur 24.mars 2026
433Sport

Friðrik Dór kominn með nóg af þessari umræðu – „Ég nenni þessu ekki lengur“

433
Þriðjudaginn 24. mars 2026 20:30

Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór Jónsson vill að FH-ingar eyði minni tíma í að horfa í baksýnisspegilinn og líti meira til framtíðar fyrir komandi fótboltasumar.

Friðrik Dór er, eins og flestir vita, mikill stuðningsmaður FH og mætti hann í Niðurtalninguna á Fótbolta.net, þar sem hitað er upp fyrir Bestu deild karla.

Það var meðal annars rætt um brotthvarf goðsagnarinnar Heimis Guðjónssonar, sem hefur skilað frábæru starfi í Kaplakrika undanfarin ár sem og á árum áður, en ákveðið var að framlengja ekki samning hans í haust og er hann tekinn við Fylki.

Margir stuðningsmenn FH hafa gagnrýnt þá ákvörðun að halda ekki í Heimi. „Auðvitað er það sárt, það elska allir Heimi,“ sagði Friðrik í þættinum en sagði svo að nú þyrftu menn að horfa fram veginn.

„En ég er orðinn svo þreyttur á öllu tali um FH, það er allt fast í fortíðinni. Hvað er langt síðan við unnum titil? Nú getum við bara hætt að tala um þetta.

Heimir er ekki hérna, Böddi (Böðvar Böðvarsson) er ekki hérna, Bjössi (Björn Daníel Sverrisson) er ekki hérna. Förum bara að tala um eitthvað annað. Við erum bara hér og vinnum okkur héðan. Ég nenni þessu ekki lengur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Bayern til í að selja meiðslapésa og United hefur áhuga

Bayern til í að selja meiðslapésa og United hefur áhuga
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Tottenham íhugar að ráða framtíðar stjóra á næstu dögum

Tottenham íhugar að ráða framtíðar stjóra á næstu dögum
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Áhugaverður dráttur í bikarnum – Rosalegur leikur á milli Vals og KR

Áhugaverður dráttur í bikarnum – Rosalegur leikur á milli Vals og KR
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Dóttir hins hundtrygga aðstoðarmanns ekki sátt eftir helgina – „Fjölskylda sem sér og finnur fyrir þessu“

Dóttir hins hundtrygga aðstoðarmanns ekki sátt eftir helgina – „Fjölskylda sem sér og finnur fyrir þessu“
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Tveir leikmenn United draga sig út úr landsliðinu vegna meiðsla

Tveir leikmenn United draga sig út úr landsliðinu vegna meiðsla
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Segist elska Óskar en er mjög hugsi eftir helgina – „Af hverju þarf hann að finna upp hjólið?“

Segist elska Óskar en er mjög hugsi eftir helgina – „Af hverju þarf hann að finna upp hjólið?“