fbpx
Þriðjudagur 24.mars 2026
433Sport

Eyjamenn stórhuga – Segir metnað og framtíðarsýn gjarnan hafa skort

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 24. mars 2026 18:30

Frá Vestmannaeyjum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Formaður ÍBV skrifar pistil í Eyjafréttir í dag þar sem hann talar fyrir mikilvægi markvissrar uppbygginar íþróttamannvirkja í Vestmannaeyjum með langtímahugsyn að leiðarljósi.

„Undanfarin misseri hefur verið lífleg umræða um uppbyggingu íþróttamannvirkja í Vestmannaeyjum. Það er fagnaðarefni, enda er hér um að ræða eitt af stóru hagsmunamálum samfélagsins. Það er mikilvægt að slík uppbygging sé unnin með langtímahugsun. Ákvarðanir sem teknar eru í dag munu hafa áhrif á starfsemi og nýtingu mannvirkja til áratuga.

Þess vegna telur ÍBV íþróttafélag eðlilegt að horft sé til heildarmyndarinnar og að mismunandi hugmyndir og sjónarmið fái að koma fram áður en farið er af stað í stór verkefni,“ skrifar Hörður Orri Grettisson meðal annars í pistli sínum.

Hann telur margt gott hafa verið gert en segir að oft hafi skort meiri metnað og framtíðarsýn.

„Það þarf að horfa á svæðið sem eina heild þar sem mismunandi mannvirki og starfsemi vinna saman. Áhersla er lögð á gervigras og flóðlýsingu, nýtt félagsheimili, handknattleikshöll og stækkun Herjólfshallar. Framtíðin felur í sér að tengja betur saman núverandi aðstöðu, bæta umgjörð fyrir æfingar og keppni og skapa rými fyrir áframhaldandi vöxt íþróttastarfs í Vestmannaeyjum.

Íþróttasvæðið við Hásteinsvöll er og á að vera hjartað í starfsemi ÍBV og gegnir lykilhlutverki í samfélaginu. Þar mætast skólastarf, frístundir, afreksíþróttir, barna og unglingastarf og almenn heilsuefling. Uppbygging mannvirkja þarf því að taka mið af þeirri breidd og ábyrgð sem felst í starfi félagsins.“

Hörður bendir á að bæjarstjórnarkosningar séu framundan

„Við viljum því bjóða öllum framboðum til samtals við félagið, kynna þeim starfsemi ÍBV, umfang rekstrarins og þá framtíðarsýn sem unnið hefur verið að. Markmiðið er að skapa sameiginlegan skilning á mikilvægi íþróttastarfsins og að uppbygging íþróttamannvirkja verði tekin inn í stefnuskrár framboðanna með skýrum og markvissum hætti.“

Hér er pistillinn í heild

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Nýr gæðastjóri Bestu deildarinnar vekur athygli í viðtali – „Við erum að reikna út XF“

Nýr gæðastjóri Bestu deildarinnar vekur athygli í viðtali – „Við erum að reikna út XF“
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Brynjólfur lenti í vandræðum með dvalarleyfi í Kanada og komst ekki til landsins í gær

Brynjólfur lenti í vandræðum með dvalarleyfi í Kanada og komst ekki til landsins í gær
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Réttarhöld hafin eftir að fjögurra mánaða barn lést – Ómenntaður ráðgjafi lagði það í hættulega svefnstöðu

Réttarhöld hafin eftir að fjögurra mánaða barn lést – Ómenntaður ráðgjafi lagði það í hættulega svefnstöðu
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Flúðu Dubai eftir að hafa verið í neðanjarðarbyrgi

Flúðu Dubai eftir að hafa verið í neðanjarðarbyrgi
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Vill fara frítt til Barcelona í sumar

Vill fara frítt til Barcelona í sumar
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

United sagt vilja kaupa vonarstjörnu Arsenal í sumar

United sagt vilja kaupa vonarstjörnu Arsenal í sumar
433Sport
Í gær

Tveir leikmenn Brentford blóðugir um miðja nótt – Hjálpuðu manni sem varð fyrir árás

Tveir leikmenn Brentford blóðugir um miðja nótt – Hjálpuðu manni sem varð fyrir árás
433Sport
Í gær

Gagnrýnin var að buga kynþokkafyllstu konu heims – „Fólk veit ekki hversu mikla vinnu ég legg í þetta“

Gagnrýnin var að buga kynþokkafyllstu konu heims – „Fólk veit ekki hversu mikla vinnu ég legg í þetta“