fbpx
Mánudagur 23.mars 2026
433Sport

Starfshópurinn skilar skýrslunni af sér – Margt heppnast hér á landi en annað má betur fara

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 23. mars 2026 13:00

Börkur Edvardsson, Kári Árnason og Jóhann Már Helgason voru hluti af starfshópnum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Starfshópur á vegum Knattspyrnusamband Íslands hefur lagt mat á áhrif breytinga á mótafyrirkomulagi Bestu deildar karla sem tóku gildi árið 2022. Markmið breytinganna voru meðal annars að fjölga leikjum, auka gæði keppninnar, styrkja vörumerki deildarinnar og bæta rekstrarforsendur félaga.

Helstu niðurstöður sýna að breytingarnar hafa í heild skilað jákvæðum áhrifum. Aðsókn og áhugi áhorfenda hefur verið stöðugur eða vaxandi og fjölgun leikja hefur ekki haft neikvæð áhrif á aðsókn á hvern leik. Sérstaklega hefur efri hluti deildarinnar styrkst, þar sem keppni um Íslandsmeistaratitil og Evrópusæti hefur orðið markvissari og spennandi.

Á sama tíma bendir greiningin til þess að áskoranir séu til staðar, einkum í neðri hluta deildarinnar þar sem aðdráttarafl og keppnislegt vægi leikja er ójafnara. Þá hefur einnig komið fram að tímasetningar leikja og miðlun hafa veruleg áhrif á sjónvarpsáhorf, sérstaklega yfir sumarmánuðina.

Niðurstöður spurningakönnunar meðal hagsmunaaðila styðja þessar ályktanir. Meirihluti telur fjölgun leikja jákvæða og að núverandi fyrirkomulag hafi aukið spennu, þó kallað sé eftir ákveðinni fínstillingu, meðal annars hvað varðar jafnvægi heimaleikja og útileikja og aukna hvata í neðri hluta deildarinnar.

Starfshópurinn telur að meginmarkmið breytinganna hafi að stórum hluta náðst og að núverandi fyrirkomulag skapi traustan grunn til áframhaldandi þróunar. Ekki er talin þörf á grundvallarbreytingum að svo stöddu, en lögð er áhersla á markvissar úrbætur, sérstaklega í miðlun, tímasetningum leikja og keppnislegum hvötum innan deildarinnar.

Skýrslu starfshópsins má sjá hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Telur að mikill uppgangur gervigreindar hafi þessar neikvæðu afleiðingar í för með sér

Telur að mikill uppgangur gervigreindar hafi þessar neikvæðu afleiðingar í för með sér
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Kepa skúrkur Arsenal í úrslitaleiknum – City fóru með sigur af hólmi á Wembley

Kepa skúrkur Arsenal í úrslitaleiknum – City fóru með sigur af hólmi á Wembley
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum
Ari Leifsson nálgast Val
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ísraelar fá þunga sekt og er gert að vera með borða á næstu leikjum

Ísraelar fá þunga sekt og er gert að vera með borða á næstu leikjum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Áhrifavaldur kemur fylgjendum sínum aftur á óvart skömmu eftir risa tilkynningu

Áhrifavaldur kemur fylgjendum sínum aftur á óvart skömmu eftir risa tilkynningu
433Sport
Fyrir 2 dögum

Arteta sagður skoða að breyta til í sóknarlínunni

Arteta sagður skoða að breyta til í sóknarlínunni
433Sport
Fyrir 2 dögum

Rosenior hefur fundið út úr því hver er að leka byrjunarliði Chelsea

Rosenior hefur fundið út úr því hver er að leka byrjunarliði Chelsea