fbpx
Mánudagur 23.mars 2026
433Sport

Segir að Arteta verði að axla ábyrgð á tapi Arsenal í gær – Skilur ekki þessa ákvörðun

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 23. mars 2026 17:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jamie Redknapp segir að Mikel Arteta eigi að bera ábyrgð á tapi Arsenal gegn Manchester City í úrslitaleik enska deildabikarsins, eftir umdeilda ákvörðun um val á markverði.

Arteta ákvað að byrja með Kepa Arrizabalaga í marki Arsenal á Wembley, í stað David Raya sem er aðalmarkvörður liðsins í deild og Meistaradeild. Kepa hafði leikið alla leiki Arsenal í bikarkeppninni fram að úrslitaleiknum.

Ákvörðunin þótti áhættusöm og hún reyndist kostnaðarsöm. Um miðjan síðari hálfleik missti Kepa boltann eftir fyrirgjöf frá Rayan Cherki, sem féll fyrir Nico O’Reilly sem skoraði. Fjórum mínútum síðar bætti O’Reilly við öðru marki og tryggði City 2-0 sigur.

Redknapp var gagnrýninn á ákvörðun Arteta. „Kepa er ekki jafn góður og Raya, þess vegna er hann varamarkvörður. Af hverju spilarðu honum í svona stórum úrslitaleik þegar þú ert að reyna að vinna titil?“ sagði hann við Sky Sports.

Hann bætti við að Arteta yrði að taka ábyrgð á þessu. „Þetta voru stór mistök,“ sagði Redknapp.

Þó bent hafi verið á að varamarkvörður City, James Trafford, hafi staðið sig vel í leiknum, sagði Redknapp að það breytti ekki því að ákvörðun Arsenal hefði ekki gengið upp.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Ian Wright setur ekki út á markmannsval Arteta en gagnrýnir aðra ákvörðun hans í gær

Ian Wright setur ekki út á markmannsval Arteta en gagnrýnir aðra ákvörðun hans í gær
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Tilkynna sorglegt andlát í hjartnæmri yfirlýsingu – „Hjörtu okkar eru brotin“

Tilkynna sorglegt andlát í hjartnæmri yfirlýsingu – „Hjörtu okkar eru brotin“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Greenwood aftur á Old Trafford?

Greenwood aftur á Old Trafford?
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Benedikt botnaði ekki í fréttaflutningi hér á landi á dögunum – Fór sjálfur og kannaði málið

Benedikt botnaði ekki í fréttaflutningi hér á landi á dögunum – Fór sjálfur og kannaði málið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Varpar fram áhugaverðri kenningu um framtíð Ronaldo

Varpar fram áhugaverðri kenningu um framtíð Ronaldo
433Sport
Fyrir 2 dögum

Benedikt baunar á Arnar og segir val hans skandal – „Hvenær er nóg nóg?“

Benedikt baunar á Arnar og segir val hans skandal – „Hvenær er nóg nóg?“