
Það er vægast sagt allt á suðupunkti hjá FC Kaupmannahöfn, sem af mörgum er talið stærsta knattspyrnufélag Norðurlandanna.
Liðið var í neðri hluta dönsku úrvalsdeildarinnar við tvískiptingu á dögunum og hefur tapað fyrstu tveimur leikjunum í neðri hlutanum, fyrst gegn OB og svo gegn Fredericia á heimavelli í gær.
FCK er nú aðeins sex stigum fyrir ofan fallsvæðið þegar átta leikjum er ólokið. Mikill hiti er á þjálfaranum Jacob Neestrup og stór hluti stuðningsmanna vill hann burt.
Hann stýrði þó æfingu í morgun en á æfingasvæðinu voru stuðningsmenn búnir að setja upp fjölda plakata þar sem stjórnarháttum hjá félaginu er mótmælt. Vilja þeir til að mynda meiri og betri fjárfestingar í aðalliðinu.
Neestrup, sem lék um stutt skeið hér á landi með FH á leikmannaferlinum, var enn og aftur spurður út í framtíð sína eftir tapið við Fredericia í gær en hafði engan áhuga á að ræða það, þrátt fyrir að mikið væri ýtt á hann.
„Ég er búinn að segja við þig að ég muni ekki ræða þetta. Þessi umræða þarf að fara fram án mín,“ sagði Neestrup við Viaplay en áfram var ýtt á hann.
„Hlustaðu nú, ég er búinn að svara þér rólega þrisvar sinnum. Það er eðlilegt að þið ræðið mína stöðu en ég verð ekki hluti af þeirri umræðu,“ sagði hann þá ákveðinn.
FCK hefur verið mikið Íslendingafélag í gegnum tíðina. Í dag er ungstirnið Viktor Bjarki Daðason á mála hjá félaginu og einni markvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson, sem hefur gert vel undanfarið og unnið sig inn í byrjunarliðið.