
Það sauð upp úr milli stuðningsmanna Newcastle og Sunderland fyrir stórleik liðanna á St James’ Park í gær.
Myndir og myndbönd á samfélagsmiðlum sýna átök þar sem flöskum var kastað og lögregla þurfti að grípa inn í og draga stuðningsmenn í sundur.

Þá vakti athygli að rúða í liðsrútu Sunderland var sprungin þegar hún mætti á svæðið.
Lögregla staðfesti að einn hafi verið handtekinn fyrir leik, en aukinn lögregluviðbúnaður var á svæðinu.
Einnig sáust óhugnanleg atriði nálægt lestarstöðinni þar sem einn stuðningsmaður fékk aðhlynningu eftir að hafa hlotið höfuðáverka. Glerbrot lágu á víð og dreif og sjúkraflutningamenn þurftu að ryðja sér leið í gegnum mannfjöldann.
Mikill rígur er á milli þessara liða, en Sunderland vann leik gærdagsins 1-2.
