
Arsenal tapaði 0-2 fyrir Manchester City í úrslitaleik enska deildabikarsins í gær.
Skytturnar sáu í raun aldrei til sólar í leiknum og sigur City verðskuldaður. Þetta var jafnframt fyrsta tap Arsenal með tveimur mörkum eða fleiri í meira en ár.
Það er tölfræðiveitan Opta sem vekur athygli á þessu, en síðasta tap Arsenal með meira en einu marki kom einmitt í deildabikarnum, í undanúrslitunum gegn Newcastle í febrúar í fyrra.
Arsenal vonast til að segja skilið við þetta tap sem fyrst, enda liðið inni í öllum öðrum keppnum og með gott forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.
410 – Arsenal’s defeat to Manchester City was their first by a margin of 2+ goals in 410 days (0-2 v Newcastle in the League Cup, Feb. 2025).
It also marked their largest xG deficit in a cup tie this season (0.63 for, 1.51 against).
Blow. pic.twitter.com/187DSQEWV0
— OptaJoe (@OptaJoe) March 22, 2026