
Staðan hjá Tottenham versnar með hverri vikunni og félagið er nú sagt skoða nýjan stjóra fyrir síðustu leiki tímabilsins í fallbaráttunni.
Eftir tap gegn Nottingham Forest í gær hefur pressan aukist verulega á Igor Tudor, sem var ráðinn tímabundið út tímabilið.
Samkvæmt Telegraph er Adi Hutter efstur á lista Spurs ef félagið ákveður að gera breytingu.
Hutter er reynslumikill stjóri sem hefur stýrt liðum á borð við Frankfurt og Monaco, og er þekktur fyrir sókndjarfan fótbolta.
Stjórn Tottenham ætlar að meta stöðuna í landsleikjahléinu, en Tottenham er sem stendur stigi fyrir ofan fallsæti þegar sjö umferðum er ólokið.