fbpx
Mánudagur 23.mars 2026
433Sport

Ben White snýr aftur í enska landsliðið

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 23. mars 2026 13:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ben White, hægri bakvörður Arsenal, hefur verið kallaður aftur í enska landsliðið í fyrsta sinn í meira en þrjú ár.

White yfirgaf herbúðir enska landsliðsins á HM 2022 og var síðan ekki í myndinni undir stjórn Gareth Southgate. Nú fær hann hins vegar nýtt tækifæri hjá Thomas Tuchel, sem velur hann í stóran hóp sinn. White kemur inn fyrir Jarell Quansah sem er meiddur.

White hefur verið í minna hlutverki en síðustu ár hjá Arsenal á þessari leiktíð, en fær þó reglulega að spila í Meistaradeildinni og bikarkeppnum.

England mætir Úrúgvæ og Japan í vináttulandsleikjum á Wembley síðar í mánuðinum.

Athygli vekur að Trent Alexander-Arnold, sem spilar sömu stöðu og White, er ekki valinn í hóp Tuchel fjórða landsliðsverkefnið í röð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Lýsti því í smáatriðum hvað hann vildi gera við fyrrverandi í rúminu ef hún tæki honum aftur – Hún sýndi allt í sjónvarpsþætti

Lýsti því í smáatriðum hvað hann vildi gera við fyrrverandi í rúminu ef hún tæki honum aftur – Hún sýndi allt í sjónvarpsþætti
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Telur að mikill uppgangur gervigreindar hafi þessar neikvæðu afleiðingar í för með sér

Telur að mikill uppgangur gervigreindar hafi þessar neikvæðu afleiðingar í för með sér
433Sport
Fyrir 2 dögum

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ísraelar fá þunga sekt og er gert að vera með borða á næstu leikjum

Ísraelar fá þunga sekt og er gert að vera með borða á næstu leikjum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Benedikt botnar ekki í feluleiknum hér á landi þegar kemur að þessu – „Það er allt svo mikið leyndarmál“

Benedikt botnar ekki í feluleiknum hér á landi þegar kemur að þessu – „Það er allt svo mikið leyndarmál“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Arteta sagður skoða að breyta til í sóknarlínunni

Arteta sagður skoða að breyta til í sóknarlínunni