fbpx
Sunnudagur 22.mars 2026
433Sport

Yfirlýsing frá Breiðablik – Segja farið með rangt mál er varðar Gabríel Aron

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 22. mars 2026 14:51

Gabríel Aron Mynd - Breiðablik

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breiðablik segir það af og frá að leikmenn félagsins hafi óskað eftir því að Gabríel Aron Sævarsson færi frá félaginu.

Fjallað var um málið í Þungavigtinni á föstudag. Gabríel var lánaður til Hauka í síðustu viku en umræðan snérist um að leikmenn Breiðabliks væru á því að hinn ungi sóknarmaður væri ekki nógu góður til að æfa með Breiðablik.

Gabríel kom til Breiðabliks frá Keflavík síðasta sumar eftir að hafa gert vel þar, hann var strax lánaður til ÍR en er nú farin til Hauka.

Eyjólfur Héðinsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá Breiðablik sendi DV yfirlýsingu vegna málsins.

Yfirlýsing Breiðabliks:
Í kjölfar umfjöllunar um Gabríel Aron Sævarson, einn af okkar ungu leikmönnum, finnur félagið sig knúið til að verja heiður leikmannsins og félagsins. Ekkert af því sem kom fram í umræddu hlaðvarpi og grein í DV varðandi ástæðu og aðdraganda þess að Gabríel Aron fór á lán á við rök að styðjast.

Frá því að Gabríel Aron kom til Breiðabliks var hugmyndin að lána hann í neðri deild, þar sem hann myndi öðlast mikilvæga reynslu og spilatíma. Hann hefur æft með liðinu af fullum krafti og staðið sig vel. Það er mjög algengt að ungir leikmenn fari á lán og hafa margir af okkar lykilleikmönnum gert það og hlotið af því mikilvæga reynslu.

Fyrrgreind umfjöllun á ekki við nein rök að styðjast og er engum til framdráttar.

Knattspyrnudeild Breiðabliks

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Sjáðu hvernig hann brást við spurningu um hvort hann tæki við United í sumar

Sjáðu hvernig hann brást við spurningu um hvort hann tæki við United í sumar
433Sport
Í gær

Benedikt botnar ekki í feluleiknum hér á landi þegar kemur að þessu – „Það er allt svo mikið leyndarmál“

Benedikt botnar ekki í feluleiknum hér á landi þegar kemur að þessu – „Það er allt svo mikið leyndarmál“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Dánarorsök opinberuð í kjölfar hins sorglega andláts – Tók 17 klukkustundir að finna lík hans

Dánarorsök opinberuð í kjölfar hins sorglega andláts – Tók 17 klukkustundir að finna lík hans
433Sport
Fyrir 2 dögum

Einn nánasti samstarfsmaður Mourinho látinn eftir erfið veikindi

Einn nánasti samstarfsmaður Mourinho látinn eftir erfið veikindi