fbpx
Sunnudagur 22.mars 2026
433Sport

Nýstárleg upplifun Jóhanns í gegnum bandarískan áhrifavald

433
Sunnudaginn 22. mars 2026 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Benedikt Bóas og Jóhann Alfreð voru gestir Helga Fannars í Íþróttavikunni á 433.is.

Það birtust óvæntar fréttir frá Afríku á dögunum þegar tilkynnt var um að Marokkó væri orðið Afríkumeistari, tveimur mánuðum eftir að hafa tapað úrslitaleik við Senegal. Senegölum var dæmdur ósigur í kjölfar kæru frá andstæðingum sínum þar sem liðið gekk af velli vegna dómgæslunnar seint í leiknum.

video
play-sharp-fill

„Ég held að handboltinn sé að hlæja að fótboltanum núna. Ég man eftir einhverjum leik þar sem við máttum ekki vinna með sjö því ef við myndum vinna of stórt myndi eitthvað gerast. Þetta hefur lengi verið mitt haldreipi í því að gera grín að handboltanum.

En fótboltinn með VAR og núna AFCON, þetta er komið út í einhverja vitleysu,“ sagði Benedikt léttur.

Jóhann rifjaði þá upp hvernig hann fylgdist með úrslitaleik keppninnar í janúar.

„Ég prófaði alveg nýja upplifun þegar ég horfði á úrslitaleik AFCON. Þetta var ekki á Sýn svo ég endaði á að horfa á live útsendingu á Youtube þar sem einhver bandarískur áhrifavaldur var í marokkósku treyjunni í stúkunni. Hann greinilega mátti ekki sýna leikinn nema bara aðeins, þannig ég upplifði leikinn í raun bara í gegnum þennan mann.“

Umræðan er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Sjáðu hvernig hann brást við spurningu um hvort hann tæki við United í sumar

Sjáðu hvernig hann brást við spurningu um hvort hann tæki við United í sumar
433Sport
Í gær

Benedikt botnar ekki í feluleiknum hér á landi þegar kemur að þessu – „Það er allt svo mikið leyndarmál“

Benedikt botnar ekki í feluleiknum hér á landi þegar kemur að þessu – „Það er allt svo mikið leyndarmál“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Dánarorsök opinberuð í kjölfar hins sorglega andláts – Tók 17 klukkustundir að finna lík hans

Dánarorsök opinberuð í kjölfar hins sorglega andláts – Tók 17 klukkustundir að finna lík hans
433Sport
Fyrir 2 dögum

Einn nánasti samstarfsmaður Mourinho látinn eftir erfið veikindi

Einn nánasti samstarfsmaður Mourinho látinn eftir erfið veikindi
Hide picture