

Benedikt Bóas og Jóhann Alfreð voru gestir Helga Fannars í Íþróttavikunni á 433.is.
Báðir eru miklir stuðningsmenn Vals og segja þeir tíðinda að vænta í næstu viku, þeir hafi verið boðaðir í töku á auglýsingu.
„Það er búið að dobbla okkur í að taka upp einhverja auglýsingu á fimmtudag,“ sagði Benedikt.
„Við vitum ekkert enn en það er verið að kynna eitthvað signing,“ bætti Jóhann við.
„Þetta er eitthvað stórt,“ sagði Benedikt að endingu um málið.
Umræðan er í spilaranum.