fbpx
Laugardagur 21.mars 2026
433Sport

Telur að þetta geti spilað inn í ákvörðun Jóa Berg – „Var ekkert endilega staðan fyrir ekki svo löngu síðan“

433
Laugardaginn 21. mars 2026 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Benedikt Bóas og Jóhann Alfreð voru gestir Helga Fannars í Íþróttavikunni á 433.is.

Jóhann Berg Guðmundsson, einn besti landsliðsmaður Íslandssögunnar, hefur verið orðaður við heimkomu í Breiðablik undanfarið.

video
play-sharp-fill

„Menn hafa svolítið verið að setja þetta í samhengi við að það er orðið aðlaðandi að klára ferilinn sinn heima, sem var ekkert endilega staðan fyrir ekki svo löngu síðan. Það er fjör í kringum íslenska boltann, við höfum séð hvernig Gylfi hefur blómstrað,“ sagði Jóhann.

„Hann mun lita deildina fallegum litum,“ skaut Benedikt inn í áður en Jóhann hélt áfram.

„Ég held að sagan eigi eftir að fara svo fallegum orðum um Jóhann Berg. Hann er ótrúlega góður og fjölhæfur fótboltamaður, með magnaðan landsliðsferil og alveg ólseigan félagsliðaferil. Ég held að hann yrði hrikalega mikill fengur fyrir Blikana, 1-2 sumur gætu gert mikið.“

Umræðan er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Vilja bjóða honum betri samning vegna áhuga frá United

Vilja bjóða honum betri samning vegna áhuga frá United
433Sport
Í gær

Hafna tilraunum Börsunga

Hafna tilraunum Börsunga
433Sport
Í gær

Íslendingarnir nálægt endurkomu en eru úr leik

Íslendingarnir nálægt endurkomu en eru úr leik
433Sport
Í gær

Hákon og félagar töpuðu í Birmingham – Sverrir fékk skell

Hákon og félagar töpuðu í Birmingham – Sverrir fékk skell
Hide picture