fbpx
Laugardagur 21.mars 2026
433Sport

Kristján Óli segir leikmenn Breiðabliks hafa óskað eftir því að Gabríel væri ekki að æfa með liðinu

433
Laugardaginn 21. mars 2026 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristján Óli Sigurðsson, sérfræðingur Þungavigtarinnar heldur því fram að leikmenn Breiðabliks hafi óskað eftir því að Gabríel Aron Sævarsson færi frá félaginu.

Gabríel sem er ungur og efnilegur sóknarmaður og var lánaður til Hauka í 2. deildinni í vikunni. Gabríel var keyptur til Breiðabliks frá Keflavík síðasta sumar og var í kjölfarið lánaður til ÍR.

Hann hefur æft með Blikum í vetur en fyrrum leikmaður Breiðabliks, Kristján Óli, segir að hann hafi ekki heillað.

„Hann átti að vera einn af þremur framherjum Breiðabliks, það er búið að vera að funda. Leikmenn tóku sig saman og vildu fund með teyminu, þeir töldu Gabríel ekki nógu góðan til að vera á æfingum liðsins,“ sagði Kristján Óli í Þungavigtinni í dag.

„Að gæðaleysið væri slíkt að hann væri ekki nógu góður á æfingum, ég fékk þessa skýrslu af þessum fundi.“

Mikael Nikulásson fyrrum þjálfari KFA og Njarðvíkur sagði að að á sínum þjálfaraferli hefði það komið upp að leikmenn hefur tjáð sig með þessum hætti, að leikmaður væri ekki nógu góður til að æfa með liðinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Hafna tilraunum Börsunga

Hafna tilraunum Börsunga
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Salah ekki tekið ákvörðun um hvað hann vill gera í sumar

Salah ekki tekið ákvörðun um hvað hann vill gera í sumar
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Formaðurinn sáttur með sögulegan samning – Goðsögn hannaði treyjuna

Formaðurinn sáttur með sögulegan samning – Goðsögn hannaði treyjuna
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Íþróttavikan: Benni Bó og Jóhann Alfreð eru brattir fyrir sumrinu á Hlíðarenda

Íþróttavikan: Benni Bó og Jóhann Alfreð eru brattir fyrir sumrinu á Hlíðarenda
433Sport
Í gær

Vill banna tveimur enskum liðum að vera með í Meistaradeildinni

Vill banna tveimur enskum liðum að vera með í Meistaradeildinni
433Sport
Í gær

Dánarorsök opinberuð í kjölfar hins sorglega andláts – Tók 17 klukkustundir að finna lík hans

Dánarorsök opinberuð í kjölfar hins sorglega andláts – Tók 17 klukkustundir að finna lík hans