fbpx
Föstudagur 20.mars 2026
433Sport

Áhrifavaldur kemur fylgjendum sínum aftur á óvart skömmu eftir risa tilkynningu

433
Föstudaginn 20. mars 2026 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Knattspyrnumarkvörðurinn og áhrifavaldurinn Justine Elliott hefur snúið aftur í fótboltann eftir stutt hlé og samið við Crewe Alexandra.

Elliott, sem áður lék með Blackburn Rovers og Accrington Stanley, tilkynnti nýverið að hún hygðist stíga til hliðar frá boltanum eftir erfiða reynslu hjá fyrra félagi.

Í tilfinningaþrunginni færslu sagði hún að hún hefði ekki misst ástina á íþróttinni, heldur upplifað aðstæður sem létu henni líða óþægilega.

„Engum ætti að líða illa eða eins og hann sé smár í íþrótt sem hann hefur helgað líf sitt,“ skrifaði Elliott til að mynda.

Nú hefur hún hins vegar ákveðið að snúa aftur og skrifað undir skammtímasamning við Crewe. Þjálfarinn Matt Fisher sagðist ánægður með að fá hana í hópinn og hrósaði bæði gæðum hennar og hugarfari.

Elliott segist sjálf spennt fyrir nýju tækifæri. „Þetta kom á réttum tíma og ég hlakka til að leggja mitt af mörkum á lokasprettinum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Liverpool sendir frá sér yfirlýsingu vegna kynþáttaníðs í garð Konate

Liverpool sendir frá sér yfirlýsingu vegna kynþáttaníðs í garð Konate
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Fullyrt að Tottenham sé að selja markvörðinn sinn til Ítalíu

Fullyrt að Tottenham sé að selja markvörðinn sinn til Ítalíu
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Salah meiddur og verður ekki með Liverpool um helgina

Salah meiddur og verður ekki með Liverpool um helgina
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Velur 35 manna hóp hjá enska landsliðinu: Maguire og Mainoo snúa aftur – Velur ekki Trent

Velur 35 manna hóp hjá enska landsliðinu: Maguire og Mainoo snúa aftur – Velur ekki Trent
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Hafnar gylliboðum frá Sádí til að vera áfram á Englandi

Hafnar gylliboðum frá Sádí til að vera áfram á Englandi
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Íslendingarnir nálægt endurkomu en eru úr leik

Íslendingarnir nálægt endurkomu en eru úr leik