fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
433Sport

United gæti fengið væna summu fyrir Greenwood í sumar

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 19. mars 2026 10:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mason Greenwood gæti verið á leið í nýtt félag í sumar, en framherjinn hjá Marseille hefur vakið áhuga stórliðsins Juventus.

Greenwood, sem er 24 ára gamall, hefur átt frábært tímabil í Frakklandi og skorað 25 mörk í 38 leikjum auk þess að leggja upp átta mörk. Frammistaða hans hefur vakið athygli víða um Evrópu.

Samkvæmt ítölskum miðlum gæti Marseille neyðst til að selja leikmanninn ef félagið nær ekki sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili. Liðið er sem stendur í þriðja sæti Ligue 1, en baráttan er hörð og stutt í næstu lið.

Ef til sölu kemur er talið að Marseille myndi krefjast að minnsta kosti 43 milljóna punda fyrir Greenwood. Manchester United myndi einnig fá hluta af þeirri upphæð vegna endursöluklausu í samningi hans, talið er að klásúlan sé 40-50 prósent.

Juventus hefur lengi haft áhuga á Greenwood og reyndi meðal annars að fá hann áður en hann gekk til liðs við Marseille árið 2024.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Óttast að heilsa Luke Shaw þoli ekki meira álag

Óttast að heilsa Luke Shaw þoli ekki meira álag
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Ekkja Diogo Jota heiðraði minningu hans með fallegum hætti – Fyrsti feðradagurinn án hans

Ekkja Diogo Jota heiðraði minningu hans með fallegum hætti – Fyrsti feðradagurinn án hans
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Gætu reynst góð tíðindi fyrir Arsenal og Manchester United

Gætu reynst góð tíðindi fyrir Arsenal og Manchester United
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Úrslitaleikur Þungavigtarbikarins í Garðabæ í kvöld

Úrslitaleikur Þungavigtarbikarins í Garðabæ í kvöld