fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
433Sport

Blaðamaður Morgunblaðsins leggur til breytingar á lögum og reglum – Refsingar í dag of þungar

433
Fimmtudaginn 19. mars 2026 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jóhann Ingi Hafþórsson blaðamaður á Morgunblaðinu leggur til breytingar í fótboltanum, hann telur refsingar í dag of þungar.

Jóhann skrifar pistil í blað dagsins um vítaspyrnur í fótbolta. „Það eru um 80 prósent líkur á marki þegar vítaspyrna er dæmd í fótbolta samkvæmt þeim gögnum sem bakvörður dagsins skoðaði áður en hann ritaði þennan pistil. Er þá ekki allt of hörð refsing að dæma hendi og víti í sumum tilvikum?,“ skrifar Jóhann í Morgunblaðið.

Hann telur að refsingin sé of hörð miðað við mögulega niðurstöðu í leiknum ef varnarmaður fær ekki boltann í höndina. „T.d. þegar varnarmaður fær boltann algjörlega óvart í höndina og það er engin hætta á ferðum. Ættu þá að vera 80 prósent líkur á að sóknarliðið skori þar sem varnarmaðurinn gerði það eitt rangt að vera með útlimi?,“ skrifar Jóhann.

„Það er eitt þegar varnarmenn handleika boltann viljandi og verja jafnvel á marklínunni, eins og Luis Suárez, fyrrverandi leikmaður Liverpool og Barcelona, gerði einu sinni fyrir landslið sitt á HM. Þá var dæmt víti og rautt enda kom hann í veg fyrir mark. En þegar leikmenn eru utarlega í teignum og fá boltann óvart í höndina mætti refsingin vera önnur.“

Jóhann leggur frekar til að dæmd verði óbein aukaspyrna. „Þá er enginn taktur í því að það sé sama refsing fyrir ljóta tæklingu inni í teig og fyrir það að vera með útlimi sem skaða engan.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Svona verða 8-liða úrslitin í Meistaradeildinni – Þrír stórleikir

Svona verða 8-liða úrslitin í Meistaradeildinni – Þrír stórleikir
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Hörmungar ensku liðanna í Meistaradeildinni – Fengu á sig 30 mörk og fjögur duttu úr leik

Hörmungar ensku liðanna í Meistaradeildinni – Fengu á sig 30 mörk og fjögur duttu úr leik
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Þorði ekki að koma út úr skápnum og sér eftir því – Félagi hans gerði það og tók eigið líf nokkrum árum síðar

Þorði ekki að koma út úr skápnum og sér eftir því – Félagi hans gerði það og tók eigið líf nokkrum árum síðar
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

United búið að opna samtalið og vilja láta til skara skríða

United búið að opna samtalið og vilja láta til skara skríða
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Arnar segir frá því hvernig Gylfi hefur heillað hann – „Hann var spenntur eins og krakki í leikfangabúð“

Arnar segir frá því hvernig Gylfi hefur heillað hann – „Hann var spenntur eins og krakki í leikfangabúð“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Arnar segir frá samtali við Jóhann Berg sem er orðaður við heimkomu – „Maður hefur ekki áhrif á það sem hann og fjölskylda hans gera“

Arnar segir frá samtali við Jóhann Berg sem er orðaður við heimkomu – „Maður hefur ekki áhrif á það sem hann og fjölskylda hans gera“