

Arnar Gunnlaugsson hefur opinberað hóp sinn fyrir komandi verkefni en íslenska liðið leikur gegn Kanada og Haítí í mars og fara báðir leikir fram í Kanada. Um er að ræða æfingaleiki.
Þetta eru fyrstu alvöru landsleiki ársins en liðið lék æfingaleik í febrúar gegn Mexíkó þar sem ekki var hægt að velja sterkasta hópinn.
Gylfi Þór Sigurðsson lék þar sinn fyrsta landsleik eftir að Arnar tók við og hann er aftur í hópnum „Hann heillaði mig frá fyrsta símtali sem ég tók við hann, hann var spenntur eins og krakki í leikfangabúð,“ segir Arnar um samskipti sín við Gylfa.
Hann segir að Gylfi hafi í Mexíkó sýnt hvað hann er til í að leggja á sig fyrir landsliðið. „Hann var svo on it og tilbúinn, svo kemur hann til Mexíkó og var frábær innan sem utan vallar.“
Hann vonar að Gylfi ásamt Aroni Einari Gunnarssyni og Jóhanni Berg Guðmundssyni verði klárir í slaginn í Þjóðadeildinni í haust.
„Mér fannst hann eiga skilið að vera í þessum hóp, vonandi með Aron, Jóa og Gylfa. Þeir geta hjálpað okkur í haust ef þeir eru í góðu standi, ég er sannfærður um það,“ sagði Arnar.