fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
433Sport

Sagðar auknar líkur á því að Jóhann Bergi skrifi undir hjá Breiðablik

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 17. mars 2026 11:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt frétt Fótbolta.net eru auknar líkur á því að Jóhann Berg Guðmundsson gangi í raðir Breiðabliks og spili með liðinu í Bestu deild karla í sumar.

Jóhann rifti samningi sínum við Al-Dhafra í Sameinuðu arabísku furstadæmunum á dögunum en hann hefur verið í atvinnumennsku í átján ár.

Jóhann fagnar 36 ára afmæli sínu síðar á þessu ári en hann hefur spilað yfir 100 landsleiki fyrir hönd Íslands.

Hann lék með Breiðablik áður en hann hélt í atvinnumennsku árið 2008 þegar hann samdi við AZ Alkmaar í Hollandi. Hann lék svo í tíu ár á Englandi, í tvö ár með Charlton og í átta ár með Burnley.

Hann hefur svo spilað í Sádí Arabíu og með Al-Dhafra síðustu tvö árin. Nú gæti svo farið að hann semji við uppeldisfélagið. „Það væri draumur,“ sagði Höskuldur Gunnlaugsson fyrirliði Breiðablik í Íþróttavikunni á föstudag, spurður út í hvernig það yrði að fá Jóa Berg heim í Kópavoginn.

Þeir voru saman úti í Mexíkó með landsliðinu á dögunum. „Á milli þess sem maður var að skoða sérsveitina og hermennina var maður kannski aðeins að taka kaffi með Jóa og daðra við hann,“ sagði Höskuldur í gamansömum tón.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Sorglegt andlát – Tvítugur drengur fallinn frá eftir hetjulega baráttu við krabbamein

Sorglegt andlát – Tvítugur drengur fallinn frá eftir hetjulega baráttu við krabbamein
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Fullyrðir að farið sé að hitna undir Rosenior

Fullyrðir að farið sé að hitna undir Rosenior
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum
U-beygja ekki í kortunum
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Enn og aftur á meiðslalistanum – Meiðst tíu sinnum á sama stað

Enn og aftur á meiðslalistanum – Meiðst tíu sinnum á sama stað
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Óvissa um leikmann Liverpool – Áhugi innan og utan Englands

Óvissa um leikmann Liverpool – Áhugi innan og utan Englands
433Sport
Í gær

Sonur Beckham virðist hjóla í bróður sinn í nýrri færslu – Sjáðu hvað hann skrifaði

Sonur Beckham virðist hjóla í bróður sinn í nýrri færslu – Sjáðu hvað hann skrifaði
433Sport
Í gær

Sögur um að sæti Jökuls í Garðabæ sé heitt þó mótið sé ekki enn hafið – „Menn eru bara í nettu áfalli“

Sögur um að sæti Jökuls í Garðabæ sé heitt þó mótið sé ekki enn hafið – „Menn eru bara í nettu áfalli“