fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
433Sport

Neymar í sárum en vonar að draumurinn rætist

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 17. mars 2026 15:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Neymar segist vera svekktur yfir því að hafa ekki verið valinn í landsliðshópinn en leggur áherslu á að halda áfram að vinna að markmiðum sínum. Um er að ræða síðasta verkefnið fyrir HM í sumar.

„Ég er svekktur og leiður yfir því að vera ekki valinn. En fókusinn er áfram sá sami, dag frá degi, æfing frá æfingu og leikur frá leik,“ sagði Neymar. Hann bætti við að draumurinn um að komast á HM væri enn á lífi.

„Við munum ná markmiðinu okkar. Það er enn eitt tækifæri eftir og draumurinn lifir áfram. Við erum í þessu saman,“ sagði Brasilíumaðurinn.

Landsliðsþjálfarinn Carlo Ancelotti útskýrði ákvörðunina og sagði að Neymar gæti enn farið á HM ef hann næði fullum bata.

„Neymar getur farið á HM ef hann er 100 prósent leikfær. Ég valdi hann ekki núna vegna þess að hann er ekki í sínu besta formi. Við þurfum leikmenn sem eru á toppnum,“ sagði Ancelotti.

Hann lagði áherslu á að Neymar þurfi að halda áfram að æfa, spila og sýna gæði sín.

„Hann þarf að halda áfram að vinna, spila og sýna hvað hann getur, bæði tæknilega og líkamlega,“ bætti hann við.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir helgina – Arsenal rúllar yfir deildina en West Ham fellur á markatölu

Ofurtölvan stokkar spilin eftir helgina – Arsenal rúllar yfir deildina en West Ham fellur á markatölu
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Ræðir fíkn sem fáir eru að tala um – Eyðilagði draum hans sem ungur maður

Ræðir fíkn sem fáir eru að tala um – Eyðilagði draum hans sem ungur maður
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Fullyrðir að farið sé að hitna undir Rosenior

Fullyrðir að farið sé að hitna undir Rosenior
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

U-beygja ekki í kortunum

U-beygja ekki í kortunum
433Sport
Í gær

Var orðinn verulega pirraður á endurteknum spurningum fréttamanns í gær – Myndband

Var orðinn verulega pirraður á endurteknum spurningum fréttamanns í gær – Myndband
433Sport
Í gær

Enn og aftur á meiðslalistanum – Meiðst tíu sinnum á sama stað

Enn og aftur á meiðslalistanum – Meiðst tíu sinnum á sama stað