fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
433Sport

Lekamál hjá Chelsea er aftur komið upp – Franskir miðlar með upplýsingar um liðið í kvöld

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 17. mars 2026 11:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Chelsea virðist enn glíma við alvarlegan leka innan herbúða sinna eftir að franskur miðill birti upplýsingar um byrjunarlið liðsins klukkustundum fyrir leik gegn Paris Saint-Germain.

Samkvæmt franska miðlinum Onze Mondial verður Wesley Fofana á varamannabekknum í síðari leik liðanna á Stamford Bridge. Fofana hefur verið gagnrýndur fyrir mistök í fyrri leiknum í París og einnig í tapi gegn Newcastle um helgina.

Í stað hans er talið að hinn 20 ára gamli Jorrel Hato muni hefja leik í miðverði ásamt Trevoh Chalobah. Þá er einnig óvissa um stöðu hægri bakvarðarins Malo Gusto, sem missti af æfingu vegna veikinda.

Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem upplýsingar um lið Chelsea leka í fjölmiðla áður en leikur hefst. Fyrir fyrri leik liðanna gegn PSG birtust einnig nákvæmar upplýsingar um byrjunarliðið í frönskum fjölmiðlum.

Liam Rosenior, knattspyrnustjóri Chelsea, sagðist eftir þann leka ætla að rannsaka málið. Nú virðist hins vegar sem sú leit hafi ekki borið árangur ef nýjustu upplýsingar reynast réttar.

Lekinn hefur vakið miklar vangaveltur um hvaðan upplýsingarnar koma. Chelsea er með nokkra franska leikmenn í hópnum, þar á meðal Fofana, Benoît Badiashile og Malo Gusto, auk tengsla við franska félagið Strasbourg.

Málið minnir á svipaðar sögur hjá Manchester United á síðasta ári, þá voru Alejandro Garnacho sem nú er hjá Chelsea og Amad Diallo sakaðir um málið en neituðu sök.

Lekavandinn gæti haft áhrif á undirbúning Chelsea fyrir mikilvæga leiki á lokaspretti tímabilsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Sorglegt andlát – Tvítugur drengur fallinn frá eftir hetjulega baráttu við krabbamein

Sorglegt andlát – Tvítugur drengur fallinn frá eftir hetjulega baráttu við krabbamein
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Fullyrðir að farið sé að hitna undir Rosenior

Fullyrðir að farið sé að hitna undir Rosenior
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum
U-beygja ekki í kortunum
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Enn og aftur á meiðslalistanum – Meiðst tíu sinnum á sama stað

Enn og aftur á meiðslalistanum – Meiðst tíu sinnum á sama stað
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Óvissa um leikmann Liverpool – Áhugi innan og utan Englands

Óvissa um leikmann Liverpool – Áhugi innan og utan Englands
433Sport
Í gær

Sonur Beckham virðist hjóla í bróður sinn í nýrri færslu – Sjáðu hvað hann skrifaði

Sonur Beckham virðist hjóla í bróður sinn í nýrri færslu – Sjáðu hvað hann skrifaði
433Sport
Í gær

Sögur um að sæti Jökuls í Garðabæ sé heitt þó mótið sé ekki enn hafið – „Menn eru bara í nettu áfalli“

Sögur um að sæti Jökuls í Garðabæ sé heitt þó mótið sé ekki enn hafið – „Menn eru bara í nettu áfalli“