fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
433Sport

Biðst afsökunar eftir að hafa reitt pabba ungstirnisins til reiði

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 17. mars 2026 19:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrum akademíuþjálfari hjá Arsenal hefur beðist afsökunar eftir gagnrýni frá föður táningsins Max Dowman.

Dowman, sem er aðeins 16 ára, vakti mikla athygli eftir frammistöðu sína í 2-0 sigri Arsenal á Everton, þar sem hann lagði upp mark fyrir Viktor Gyökeres og skoraði svo sjálfur í lokin. Hann varð þar með yngsti markaskorari í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

Í kjölfarið fór fyrrum þjálfarinn Temisan Williams í viðtal þar sem hann ræddi þróun leikmannsins. Faðir hans, Robert Dowman, gagnrýndi það harðlega og sakaði hann um að reyna að upphefja sjálfan sig.

„Ég man eftir honum að setja niður keilur á æfingum, en ekki meira en það,“ skrifaði faðirinn á samfélagsmiðlum.

Williams hefur nú beðist afsökunar og segist ekki ætla að ræða Dowman frekar.

„Ég hef talað við fjölskylduna og beðist afsökunar. Framvegis mun ég ekki ræða Max og þróun hans,“ sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Carrick sagður leggja það til við stjórn United að þeir skipti um skoðun

Carrick sagður leggja það til við stjórn United að þeir skipti um skoðun
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Sorglegt andlát 22 ára karlmanns sem var í leit að næsta tækifæri – Dánarorsök liggur ekki fyrir

Sorglegt andlát 22 ára karlmanns sem var í leit að næsta tækifæri – Dánarorsök liggur ekki fyrir
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Szoboszlai svekktur með stuðningsmenn Liverpool – Biður um betri og meiri stuðning

Szoboszlai svekktur með stuðningsmenn Liverpool – Biður um betri og meiri stuðning
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Þórður telur stöðuna í Kópavogi mjög slæma – „Myndi mæla með að vera alls, alls ekki að kaupa“

Þórður telur stöðuna í Kópavogi mjög slæma – „Myndi mæla með að vera alls, alls ekki að kaupa“
433Sport
Í gær

Draumur Rashford gæti orðið að veruleika eftir kosningar helgarinnar

Draumur Rashford gæti orðið að veruleika eftir kosningar helgarinnar
433Sport
Í gær

Sorglegt andlát – Tvítugur drengur fallinn frá eftir hetjulega baráttu við krabbamein

Sorglegt andlát – Tvítugur drengur fallinn frá eftir hetjulega baráttu við krabbamein