fbpx
Miðvikudagur 25.febrúar 2026
433Sport

UEFA hafnar áfrýjuninni

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 15:09

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

UEFA hefur hafnað áfrýjun Benfica vegna banns Gianluca Prestianni gegn Real Madrid í kvöld. Frá þessu greina helstu miðlar.

Prestianni var dæmdur í eins leiks bann fyrir seinni leikinn gegn Real Madrid í umspili Meistaradeildarinnar vegna meints kynþáttaníðs í garð Vinicius Junior í fyrri leik liðanna í síðustu viku.

Rannsókn á málinu stendur yfir en var Prestianni settur í eins leiks bann til bráðabirgða á meðan. Benfica áfrýjaði en því hefur verið hafnað.

Argentínumaðurinn ungi fær því ekki að spila á Santiago Bernabeu í kvöld, en leikmenn Real Madrid höfðu til að mynda kallað eftir því að það yrði niðurstaðan.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Gefur upp upplýsingar sem hann heyrði um stöðu Foden á bak við tjöldin – Er þetta að angra hann?

Gefur upp upplýsingar sem hann heyrði um stöðu Foden á bak við tjöldin – Er þetta að angra hann?
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Uppljóstrar því sem eiginkonan gerði fyrir hann eftir að hann skákaði Ronaldo

Uppljóstrar því sem eiginkonan gerði fyrir hann eftir að hann skákaði Ronaldo
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Tæp sex milljóna króna sekt fyrir að mæta 10 mínútum of seint

Tæp sex milljóna króna sekt fyrir að mæta 10 mínútum of seint
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Halda því fram að Liverpool væri til í að skipta á leikmanni Real Madrid og Szoboszlai

Halda því fram að Liverpool væri til í að skipta á leikmanni Real Madrid og Szoboszlai