fbpx
Þriðjudagur 24.febrúar 2026
433Sport

Frá Norwich til Barcelona

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 21:30

Ajay Tavares. Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Barcelona hefur gengið frá kaupum á enska unglingalandsliðsmanninn Ajay Tavares frá Norwich.

Tavares er aðeins 16 ára gamall og þykir afar efnilegur, en hann hefur verið hjá Norwich frá 12 ára aldri og heillað marga allar götur síðan.

Hann vakti athygli fjölda evrópskra stórliða en Barcelona hafði að lokum betur í baráttunni um leikmanninn. Norwich fær greiddar uppeldisbætur vegna félagaskiptanna, en félagið hefur ekki staðfest hver sú fjárhæð er.

Tavares kom inn á sem varamaður í æfingaleik með aðalliði Norwich gegn Volendam síðasta sumar, þá aðeins 15 ára gamall, en hann náði þó ekki að leika keppnisleik með meistaraflokki. Hann lék síðast með U18-liði Norwich gegn Chelsea í janúar.

Tavares hefur leikið með yngri landsliðum Englands, frá U-15 upp í U-17, og er talinn eiga bjarta framtíð fyrir sér með landi einnig.

Hann er ekki fyrsti ungi leikmaðurinn sem Barcelona sækir til Englands á síðustu árum, en félagið hefur áður fengið til sín efnilega unglinga þaðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Verulega ósáttur við að þurfa að mæta fyrir dóm – Hafnar því að hafa nauðga konunni

Verulega ósáttur við að þurfa að mæta fyrir dóm – Hafnar því að hafa nauðga konunni
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Dólgsháttur Cunha í gærkvöldi vekur athygli – Átti dómarinn að spjalda hann?

Dólgsháttur Cunha í gærkvöldi vekur athygli – Átti dómarinn að spjalda hann?
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Sjáðu myndbandið: Eyjamenn í kröppum dansi á Spáni – Blóðheitir heimamenn sem vildu slagsmál

Sjáðu myndbandið: Eyjamenn í kröppum dansi á Spáni – Blóðheitir heimamenn sem vildu slagsmál
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Missir prófið í sex mánuði og fær sekt eftir glæfraakstur

Missir prófið í sex mánuði og fær sekt eftir glæfraakstur
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Hefur fundið ástina á nýjan leik eftir að hafa sparkað barnsmóðir sinni út fyrir jól

Hefur fundið ástina á nýjan leik eftir að hafa sparkað barnsmóðir sinni út fyrir jól
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Spænsku risarnir vilja Rodri í sumar

Spænsku risarnir vilja Rodri í sumar