

Bandaríski framherjinn Josh Sargent er á leið frá Norwich City til Toronto FC í MLS-deildinni eftir að félögin náðu samkomulagi um 15,5 milljóna punda kaupverð.
Sargent, sem er 25 ára, hefur ákveðið að yfirgefa Norwich eftir að hafa talið sig hafa verið sýndan skortur á virðingu í samtali við stjórnendur félagsins.
Hann hafði átt fund með þjálfaranum Philippe Clement og íþróttastjóranum Ben Knapper þar sem hann óskaði eftir því að fá að fara.
Samkvæmt enskum blöðum skapaðist spenna á fundinum og er sagt að ummæli frá Knapper um fjölskyldu Sargent hafi farið illa í leikmanninn, sem varð bæði sár og ósáttur.
Toronto hafði þegar sýnt áhuga í desember og Sargent er sagður vilja snúa aftur til Bandaríkjanna, meðal annars vegna fjölskylduaðstæðna.
Hann vill vera nær eiginkonu sinni og þremur ungum börnum, sem hefur haft mikil áhrif á ákvörðun hans um að færa sig yfir í MLS-deildina.