fbpx
Laugardagur 21.febrúar 2026
433Sport

Gervigreindin tekur yfir búninga Chelsea

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 21. febrúar 2026 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Chelsea hefur loks fundið nýjan aðalstyrktaraðila eftir langa bið, en félagið hefur samið við gervigreindarfyrirtækið IFS. Nafn fyrirtækisins mun þó aðeins prýða treyjur liðsins út yfirstandandi tímabil.

Lundúnaliðið hefur verið án langtímasamnings síðan 2023 þegar Three hætti samstarfi sínu í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu og refsiaðgerða gegn fyrrverandi eiganda félagsins, Roman Abramovich.

Síðan þá hafa verið gerðir skammtímasamningar við fyrirtæki á borð við Infinite Athlete og Damac Properties.

Chelsea hefur verið eina félagið í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili án styrktaraðila á treyjum sínum. Ein helsta ástæðan var sú að félagið taldi sig eiga rétt á um 65 milljónum punda á ári fyrir slíkan samning.

IFS, sem er sagt leiðandi í iðnaðar-gervigreind, verður nú aðalstyrktaraðili félagsins og mun einnig koma að tæknilausnum innan þess. Samningurinn er til margra ára, þó treyjuauglýsingin gildi aðeins út tímabilið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Hjólar í Íslandsvininn – Segir honum að hugsa áður en hann opnar munninn

Hjólar í Íslandsvininn – Segir honum að hugsa áður en hann opnar munninn
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Telja að tíminn leiði í ljós að kaupin á Eze hafi verið þess virði

Telja að tíminn leiði í ljós að kaupin á Eze hafi verið þess virði
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Carrick segist ekki vita hvort hann fái boð um að halda áfram

Carrick segist ekki vita hvort hann fái boð um að halda áfram
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Íþróttavikan: Hiti á fréttamannafundi og skjálfti í Norður-London

Íþróttavikan: Hiti á fréttamannafundi og skjálfti í Norður-London
433Sport
Í gær

Telur starf Arteta í hættu ef Arsenal mistekst

Telur starf Arteta í hættu ef Arsenal mistekst
433Sport
Í gær

Hallgrímur Mar framlengir við KA – Einn besti leikmaður í sögu félagsins

Hallgrímur Mar framlengir við KA – Einn besti leikmaður í sögu félagsins