fbpx
Þriðjudagur 24.mars 2026
433Sport

Friðrik Dór kominn með nóg af þessari umræðu – „Ég nenni þessu ekki lengur“

433
Þriðjudaginn 24. mars 2026 20:30

Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór Jónsson vill að FH-ingar eyði minni tíma í að horfa í baksýnisspegilinn og líti meira til framtíðar fyrir komandi fótboltasumar.

Friðrik Dór er, eins og flestir vita, mikill stuðningsmaður FH og mætti hann í Niðurtalninguna á Fótbolta.net, þar sem hitað er upp fyrir Bestu deild karla.

Það var meðal annars rætt um brotthvarf goðsagnarinnar Heimis Guðjónssonar, sem hefur skilað frábæru starfi í Kaplakrika undanfarin ár sem og á árum áður, en ákveðið var að framlengja ekki samning hans í haust og er hann tekinn við Fylki.

Margir stuðningsmenn FH hafa gagnrýnt þá ákvörðun að halda ekki í Heimi. „Auðvitað er það sárt, það elska allir Heimi,“ sagði Friðrik í þættinum en sagði svo að nú þyrftu menn að horfa fram veginn.

„En ég er orðinn svo þreyttur á öllu tali um FH, það er allt fast í fortíðinni. Hvað er langt síðan við unnum titil? Nú getum við bara hætt að tala um þetta.

Heimir er ekki hérna, Böddi (Böðvar Böðvarsson) er ekki hérna, Bjössi (Björn Daníel Sverrisson) er ekki hérna. Förum bara að tala um eitthvað annað. Við erum bara hér og vinnum okkur héðan. Ég nenni þessu ekki lengur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Treysta Howe áfram og ætla í miklar breytingar á hópnum í sumar

Treysta Howe áfram og ætla í miklar breytingar á hópnum í sumar
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Bayern til í að selja meiðslapésa og United hefur áhuga

Bayern til í að selja meiðslapésa og United hefur áhuga
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Sturluð staðreynd um Arteta og Wembley – Tapið um helgina var það fyrsta

Sturluð staðreynd um Arteta og Wembley – Tapið um helgina var það fyrsta
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Tveir leikmenn United draga sig út úr landsliðinu vegna meiðsla

Tveir leikmenn United draga sig út úr landsliðinu vegna meiðsla
433Sport
Í gær

Reglum breytt á dögunum – Sá fyrsti ákærður og á yfir höfði sér þunga refsingu

Reglum breytt á dögunum – Sá fyrsti ákærður og á yfir höfði sér þunga refsingu
433Sport
Í gær

Jurgen Klopp segir slúðrið sem hefur verið í gangi tóma þvælu

Jurgen Klopp segir slúðrið sem hefur verið í gangi tóma þvælu