
Marseille tapaði heima gegn Lille í gær, 1-2, en stjóri liðsins, Habib Beye, var brjálaður yfir dómgæslunni í leiknum.
Mason Greenwood, leikmaður Marseille, var tæklaður frekar harkalega af Calvin Verdonk snemma leiks og fékk sá síðarnefndi gult spjald að launum.
Greenwood var allt annað en sáttur við Verdonk og ætlaði að láta það í ljós þegar íslenski landsliðsmaðurinn Hákon Arnar Haraldsson í liði Lille mætti á svæðið og keyrði Greenwood niður á ný.
Fimm mínútum síðar fór Greenwood svo meiddur af velli vegna tæklingar Verdonk.
„Svona ofbeldi á að refsa. Haraldsson var árásargjarn og ofbeldisfullur. Þetta breytti leiknum okkar því við misstum leikmann meiddan af velli,“ sagði Beye eftir leik.
Greenwood gets bodychecked by Haraldsson during OM – LOSC
by
u/TheRedDogue in
soccer