

Nokkrir leikmenn Arsenal munu ekki taka þátt í landsleikjahléinu vegna meiðsla eða vegna þess að þeir þurfa að vinna í líkamlegu ástandi sínu.
Gabriel Magalhães hefur dregið sig úr brasilíska landsliðshópnum vegna hnémeiðsla. Þá verður William Saliba ekki með franska landsliðinu að þessu sinni.
Leandro Trossard hefur einnig hætt við þátttöku með Belgíu, á meðan Martin Odegaard og Jurrien Timber munu nýta hléið til að bæta formið í stað þess að spila með landsliðum sínum.
Þá hefur Eberechi Eze verið tekinn út úr enska landsliðshópnum.
Ekki er talið að meiðslin séu alvarleg og líklega vill Arsenal frekar að leikmenn hvíli sig frekar en að fara í landsleiki.