fbpx
Mánudagur 23.mars 2026
433Sport

Leikmaður Newcastle inn fyrir leikmann Arsenal

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 23. mars 2026 15:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Harvey Barnes, kantmaður Newcastle United, hefur verið kallaður inn í enska landsliðið af Thomas Tuchel.

Barnes kemur inn í hópinn í stað Eberechi Eze, sem er meiddur og missti af úrslitaleik Arsenal gegn Manchester City í enska deildabikarnum í gær.

Þetta er aðeins annað skiptið sem Barnes er valinn í landsliðið, hann á einn landsleik sem kom árið 2020.

Athygli vekur að Skotland reyndi að fá hann til að skipta um landslið fyrir HM í sumar, en Barnes hafnaði því.

England mætir Úrúgvæ og Japan í vináttuleikjum á Wembley síðar í mánuðinum.

Barnes hefur verið í góðu formi með Newcastle á tímabilinu og skorað 14 mörk í öllum keppnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Tilkynna sorglegt andlát í hjartnæmri yfirlýsingu – „Hjörtu okkar eru brotin“

Tilkynna sorglegt andlát í hjartnæmri yfirlýsingu – „Hjörtu okkar eru brotin“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Fær fáar mínútur hjá Arsenal og er á blaði Manchester United fyrir sumarið

Fær fáar mínútur hjá Arsenal og er á blaði Manchester United fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Benedikt baunar á Arnar og segir val hans skandal – „Hvenær er nóg nóg?“

Benedikt baunar á Arnar og segir val hans skandal – „Hvenær er nóg nóg?“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Bournemouth og United skildu jöfn – Sjáðu er Maguire fékk rautt

Bournemouth og United skildu jöfn – Sjáðu er Maguire fékk rautt