fbpx
Mánudagur 23.mars 2026
433Sport

Gagnrýnin var að buga kynþokkafyllstu konu heims – „Fólk veit ekki hversu mikla vinnu ég legg í þetta“

433
Mánudaginn 23. mars 2026 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alisha Lehmann, leikmaður Leicester City, hefur opnað sig um erfiða tíma á ferlinum þegar hún íhugaði að hætta í knattspyrnu vegna gagnrýni.

Lehmann, sem oft er kölluð „kynþokkafyllsta knattspyrnukona heims“, hefur byggt upp gríðarlega fylgjendahóp á samfélagsmiðlum. Þrátt fyrir það segir hún að ímyndin sem fylgi henni hafi haft neikvæð áhrif.

Svissneski framherjinn, sem er 26 ára, segir að margir telji hana ekki vera alvöru knattspyrnumann heldur einungis samfélagsmiðlastjörnu. „Þegar ég var yngri hafði þetta meiri áhrif á mig því ég vissi ekki hvernig ég ætti að takast á við þetta,“ sagði hún.

Hún viðurkennir að gagnrýnin hafi stundum verið það erfið að hún hugleiddi að hætta. „Það voru tímar þar sem ég var mjög leið og spurði mömmu mína hvort ég mætti hætta í fótbolta,“ sagði Lehmann.

Hún hafnar þó alfarið þeirri hugmynd að hún taki starfið ekki alvarlega. „Fólk veit ekki hversu mikla vinnu ég legg í þetta. Það heldur að ég fari bara á æfingu og geri svo TikTok myndbönd, en það er alls ekki rétt,“ bætti hún við.

Lehmann segir að líf sitt snúist alfarið um að ná árangri á vellinum, með ströngu skipulagi, hvíld og undirbúningi fyrir leiki.

Nú segist hún hafa lært að loka á gagnrýnina. „Ég er í góðu jafnvægi í dag, elska lífið mitt og fólkið í kringum mig og læt þetta ekki hafa áhrif á mig lengur,“ sagði hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Viktor Nói í FH
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Arteta sér ekki eftir neinu – „Það hefði verðið mjög ósanngjarnt“

Arteta sér ekki eftir neinu – „Það hefði verðið mjög ósanngjarnt“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ben White snýr aftur í enska landsliðið

Ben White snýr aftur í enska landsliðið
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Fær fáar mínútur hjá Arsenal og er á blaði Manchester United fyrir sumarið

Fær fáar mínútur hjá Arsenal og er á blaði Manchester United fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Svona kastaði hann frá sér 7 milljónum með einni ákvörðun – Myndband

Svona kastaði hann frá sér 7 milljónum með einni ákvörðun – Myndband
433Sport
Í gær

Telur að mikill uppgangur gervigreindar hafi þessar neikvæðu afleiðingar í för með sér

Telur að mikill uppgangur gervigreindar hafi þessar neikvæðu afleiðingar í för með sér
433Sport
Í gær

Kepa skúrkur Arsenal í úrslitaleiknum – City fóru með sigur af hólmi á Wembley

Kepa skúrkur Arsenal í úrslitaleiknum – City fóru með sigur af hólmi á Wembley