

Georgina Rodriguez, unnusta Cristiano Ronaldo, vakti athygli á samfélagsmiðlum þegar hún sýndi frá lífsstíl parsins og dýrum eigum þeirra.
Ronaldo, sem leikur með Al-Nassr, er um þessar mundir í endurhæfingu á Spáni eftir að hafa meiðst í leik í sádiarabísku deildinni í lok febrúar. Hann fór meiddur af velli og síðar kom í ljós að hann hafði tognað aftan í læri, sem hefur haldið honum frá keppni.

Á meðan á bataferlinu stendur hefur hann eytt tíma með Rodriguez, sem birti myndir á Instagram þar sem má sjá parið njóta lífsins. Þar mátti meðal annars sjá Ronaldo aka afar dýrum Bugatti Centodieci bíl, sem er metinn á um 10 milljónir punda.
Einnig vakti athygli að þau voru með afar verðmæt úr. Talið er að Ronaldo hafi verið með Patek Philippe úr að verðmæti um 525 þúsund punda, á meðan Rodriguez bar úr sem getur kostað allt að 330 þúsund pund.

Þá var Georgina með trúlofunarhring sinn sem kostar 4,5 milljón, verðmætið á myndinni var því 2,5 milljarður.
Parið hefur verið saman síðan 2016 og er þekkt fyrir glæsilegan lífsstíl.
Þrátt fyrir lúxuslífið er aðaláherslan hjá Ronaldo nú á að ná sér af meiðslum og snúa sem fyrst aftur á völlinn.