fbpx
Sunnudagur 22.mars 2026
433Sport

Óvænt tíðindi – Birkir Már Sævarsson skrifar undir í Mosó

Hörður Snævar Jónsson
Sunnudaginn 22. mars 2026 18:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hægri bakvörðurinn Birkir Már Sævarsson hefur samið við Aftureldingu út komandi tímabil. Birkir er gríðarlega reynslumikill leikmaður en hann er fjórði leikjahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi með 103 A landsleiki. Birkir spilaði meðal annars með íslenska landsliðinu á EM í Frakklandi 2016 og á HM í Rússlandi 2018.

Birkir hefur þrívegis orðið Íslandsmeistari með Val á ferli sínum en hann spilaði einnig með Brann í Noregi og Hammarby í Svíþjóð á sínum tíma. Í fyrra spilaði Birkir með Nacka í Svíþjóð en í vetur hefur hann æft og spilað með KH á Íslandi.
Birkir er eldri bróðir Arons Elí Sævarssonar fyrirliða Aftureldingar. Aron er að fara inn í sitt sjöunda tímabil í Mosfellsbæ og mun nú spila með bróður sínum í Aftureldingu.

,,Mér líst vel mjög vel á að ganga til liðs við Aftureldingu. Ég hef fylgst vel með liðinu á síðustu árum og hrifist af leikstílnum og andrúmsloftinu í kringum klúbbinn. Svo er auðvitað gamall draumur að rætast þegar ég fæ loksins tækifæri til að spila með litla bróður mínum. Þannig að ég hlakka mikið til sumarsins í Mosó,” sagði Birkir eftir undirskrift.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Ísraelar fá þunga sekt og er gert að vera með borða á næstu leikjum

Ísraelar fá þunga sekt og er gert að vera með borða á næstu leikjum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Áhrifavaldur kemur fylgjendum sínum aftur á óvart skömmu eftir risa tilkynningu

Áhrifavaldur kemur fylgjendum sínum aftur á óvart skömmu eftir risa tilkynningu
433Sport
Fyrir 2 dögum

Arteta sagður skoða að breyta til í sóknarlínunni

Arteta sagður skoða að breyta til í sóknarlínunni
433Sport
Fyrir 2 dögum

Rosenior hefur fundið út úr því hver er að leka byrjunarliði Chelsea

Rosenior hefur fundið út úr því hver er að leka byrjunarliði Chelsea
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fullyrt að Tottenham sé að selja markvörðinn sinn til Ítalíu

Fullyrt að Tottenham sé að selja markvörðinn sinn til Ítalíu
433Sport
Fyrir 2 dögum

Formaðurinn sáttur með sögulegan samning – Goðsögn hannaði treyjuna

Formaðurinn sáttur með sögulegan samning – Goðsögn hannaði treyjuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Velur 35 manna hóp hjá enska landsliðinu: Maguire og Mainoo snúa aftur – Velur ekki Trent

Velur 35 manna hóp hjá enska landsliðinu: Maguire og Mainoo snúa aftur – Velur ekki Trent
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fundin sek um að greiða undir lágmarkslaunum

Fundin sek um að greiða undir lágmarkslaunum