fbpx
Laugardagur 21.mars 2026
433Sport

Benedikt baunar á Arnar og segir val hans skandal – „Hvenær er nóg nóg?“

433
Laugardaginn 21. mars 2026 07:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Benedikt Bóas og Jóhann Alfreð voru gestir Helga Fannars í Íþróttavikunni á 433.is.

Arnar Gunnlaugsson valdi landsliðshóp fyrir vináttulandsleiki gegn Kanada og Haítí í lok mánaðar á dögunum. Benedikt er verulega ósáttur við að Tómas Bent Magnússon, leikmaður Hearts, sé ekki valinn.

„Tómas Bent er ekki þarna og það er fyrir mér skandall. Hvar er Tómas Bent? Komst hann bara ekki í hópinn?“ sagði hann.

„Þú verður alltaf að taka einhvern út,“ sagði Helgi þá en Benedikt var ekki lengi að svara.

video
play-sharp-fill

„Já, ég skal bara taka Gylfa Þór Sigurðsson út. Hann er á undirbúningstímabili á Íslandi. Tómas er á toppnum í Skotlandi.

Tómas Bent gerir alla í kringum sig betri. Það er ekki bara eitthvað sem ég er að segja, heldur er að lesa í skoskum fjölmiðlum. Miðað við enskuslettur Arnars held ég að hann lesi ensku,“ sagði hann.

„Stendur Gylfi ekki svolítið fyrir utan það að vera ekki valinn því hann er á undirbúningstímabilinu á Íslandi? Hann er besti leikmaður Íslandssögunnar,“ spurði Helgi en Benedikt var ekki á því.

„Hann er besti landsliðsmaður sögunnar, um það verður ekki deilt. En undirbúningstímabilið á Íslandi er ekki það sama og að vera að spila alla leiki í Skotlandi og vera á toppnum.“

Benedikt er jafnframt á því að það þurfi að fara að hleypa yngri mönnum að. „Hvenær er nóg nóg?“ spurði hann og á þar við gullkynslóðina.

„Ég trúi ekki öðru en að hann spili landsleik áður en langt um líður. Það er líka svo gaman að eiga allavega einn traustan leikmann í Skotlandi,“ sagði Jóhann um Tómas Bent.

Umræðan er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Hafna tilraunum Börsunga

Hafna tilraunum Börsunga
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Salah ekki tekið ákvörðun um hvað hann vill gera í sumar

Salah ekki tekið ákvörðun um hvað hann vill gera í sumar
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Formaðurinn sáttur með sögulegan samning – Goðsögn hannaði treyjuna

Formaðurinn sáttur með sögulegan samning – Goðsögn hannaði treyjuna
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Íþróttavikan: Benni Bó og Jóhann Alfreð eru brattir fyrir sumrinu á Hlíðarenda

Íþróttavikan: Benni Bó og Jóhann Alfreð eru brattir fyrir sumrinu á Hlíðarenda
433Sport
Í gær

Vill banna tveimur enskum liðum að vera með í Meistaradeildinni

Vill banna tveimur enskum liðum að vera með í Meistaradeildinni
433Sport
Í gær

Dánarorsök opinberuð í kjölfar hins sorglega andláts – Tók 17 klukkustundir að finna lík hans

Dánarorsök opinberuð í kjölfar hins sorglega andláts – Tók 17 klukkustundir að finna lík hans
Hide picture