fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
433Sport

Segir Breiðablik leita til fjársterka aðila til að fjármagna launapakka Jóhanns Berg

433
Fimmtudaginn 19. mars 2026 12:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svo virðist sem líkur séu á því að Jóhann Berg Guðmundson gangi í raðir Breiðabliks áður en Besta deild karla fer af stað. Jóhann rifti samningi sínum við Al-Dhafra í Sameinuðu arabísku furstadæmunum á dögunum en hann hefur verið í atvinnumennsku í átján ár.

„Blikar eru farnir að gera sér vonir, frá því að vera ómögulegt í að þetta gæti gerst,“ segir Hjörvar Hafliðason í Dr. Football þætti dagsins.

Albert Brynjar Ingason segir Breiðablik nú herja á sterk efnaða Blika. „Maður hefur heyrt að það sé farin af stað söfnun, leita til fjársterkra aðila til að fjármagna laun Jóa.“

Jóhann Már Helgason segir að Jóhann þurfi að vera launahæsti leikmaður liðsins. „Hann þarf að vera launahæsti leikmaðurinn í þessu liði, þetta væri lyftistöng. Þetta væri hrikalega gaman.“

Jóhann fagnar 36 ára afmæli sínu síðar á þessu ári en hann hefur spilað yfir 100 landsleiki fyrir hönd Íslands.

Hann lék með Breiðablik áður en hann hélt í atvinnumennsku árið 2008 þegar hann samdi við AZ Alkmaar í Hollandi. Hann lék svo í tíu ár á Englandi, í tvö ár með Charlton og í átta ár með Burnley.

Hann hefur svo spilað í Sádí Arabíu og með Al-Dhafra síðustu tvö árin. Nú gæti svo farið að hann semji við uppeldisfélagið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Barðist við tárin í beinni útsendingu og netverjar skjóta fast á hann – Ástæðan vekur nokkra furðu

Barðist við tárin í beinni útsendingu og netverjar skjóta fast á hann – Ástæðan vekur nokkra furðu
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Má fara frá City í sumar og Tottenham hefur áhuga

Má fara frá City í sumar og Tottenham hefur áhuga
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Hörmungar ensku liðanna í Meistaradeildinni – Fengu á sig 30 mörk og fjögur duttu úr leik

Hörmungar ensku liðanna í Meistaradeildinni – Fengu á sig 30 mörk og fjögur duttu úr leik
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Töfrar á Anfield í Meistaradeildinni – Tottenham úr leik þrátt fyrir öfluga frammistöðu

Töfrar á Anfield í Meistaradeildinni – Tottenham úr leik þrátt fyrir öfluga frammistöðu
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Vinicius Junior útskýrir fagn sitt í gær – Segir þetta ekki vanvirðingu

Vinicius Junior útskýrir fagn sitt í gær – Segir þetta ekki vanvirðingu
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Óttast að heilsa Luke Shaw þoli ekki meira álag

Óttast að heilsa Luke Shaw þoli ekki meira álag
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Mikil reiði hjá stjórnvöldum og niðurstöðunni verður áfrýjað

Mikil reiði hjá stjórnvöldum og niðurstöðunni verður áfrýjað
433Sport
Í gær

Arnar Gunnlaugs í ítarlegu viðtali: Landsliðið tók stór skref í fyrra en í ár verða úrslitin að fylgja með

Arnar Gunnlaugs í ítarlegu viðtali: Landsliðið tók stór skref í fyrra en í ár verða úrslitin að fylgja með