fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
433Sport

Handtekinn á Costa del Sol með fíkniefni á sér

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 19. mars 2026 13:30

Þetta er það sem lögreglan fann.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrum leikmaður West Bromwich Albion hefur samkvæmt fréttum verið handtekinn á Costa del Sol eftir fíkniefnaaðgerð lögreglu.

Um er að ræða 47 ára breskan mann sem var stöðvaður af lögreglu þegar hann yfirgaf verslunarmiðstöðina Las Terrazas í Riviera del Sol, svæði á milli Marbella og Fuengirola.

Samkvæmt upplýsingum lögreglu fannst maðurinn með poka af kannabisefnum þegar hann var stöðvaður. Í kjölfarið fann lögreglan frekari fíkniefni inni í versluninni sem hann hafði nýlega heimsótt.

Handtakan átti sér stað í síðustu viku, en yfirvöld höfðu áður staðfest aðgerðina án þess að gefa upp nánari upplýsingar um manninn. Nú hefur staðbundinn miðill greint frá því að um sé að ræða fyrrum knattspyrnumann sem eyddi stærstum hluta ferils síns hjá West Brom.

Ekki hefur verið greint frá nafni mannsins og óljóst er hvort hann hefur komið fyrir dómara eða verið látinn laus gegn tryggingu á meðan rannsókn stendur yfir.

Lögreglan í Mijas segir að aðgerðin sé hluti af áframhaldandi baráttu gegn fíkniefnaviðskiptum á svæðinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Ólöglegar greiðslur Chelsea skiluðu miklum árangri – Mörgum finnst refsingin væg

Ólöglegar greiðslur Chelsea skiluðu miklum árangri – Mörgum finnst refsingin væg
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Davíð Þór fer inn í stjórn ÍTF – Stefnir í arðgreiðslur í lok árs

Davíð Þór fer inn í stjórn ÍTF – Stefnir í arðgreiðslur í lok árs
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Arsenal fær harða samkeppni um þýska landsliðsmanninn

Arsenal fær harða samkeppni um þýska landsliðsmanninn
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Svona verða 8-liða úrslitin í Meistaradeildinni – Þrír stórleikir

Svona verða 8-liða úrslitin í Meistaradeildinni – Þrír stórleikir
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

United búið að opna samtalið og vilja láta til skara skríða

United búið að opna samtalið og vilja láta til skara skríða
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Barcelona hamraði sjö mörkum á Newcastle og flaug áfram

Barcelona hamraði sjö mörkum á Newcastle og flaug áfram
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Arne Slot mjög ósammála fullyrðingum Carragher

Arne Slot mjög ósammála fullyrðingum Carragher
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Svona er hópur U-19 ára landsliðsins – Sex spila erlendis

Svona er hópur U-19 ára landsliðsins – Sex spila erlendis