fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
433Sport

Samfélagsmiðlastjarnan rak stjórann strax úr starfi – Ræður Andy Carroll inn í staðinn

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 18. mars 2026 18:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samfélagsmiðlastjarnan KSI hefur tekið sína fyrstu stóru ákvörðun sem eigandi Dagenham & Redbridge með því að reka knattspyrnustjórann Lee Bradbury.

Bradbury, sem er 50 ára gamall, hefur látið af störfum þrátt fyrir að liðið hafi unnið leik sinn gegn Farnborough á dögunum. Dagenham situr í 12. sæti í National League South og KSI hafði nýlega fylgst með liði sínu vinna Dorking Wanderers.

Í hans stað hefur Andy Carroll verið ráðinn tímabundinn stjóri. Carroll, sem er 37 ára gamall fyrrum landsliðsmaður Englands, gekk til liðs við félagið sem leikmaður síðasta sumar en er nú meiddur. Hann á einnig minnihlutaeign í félaginu.

Í tilkynningu frá félaginu var Bradbury þakkað fyrir störf sín og framlag til að koma stöðugleika á liðið. Carroll mun stýra liðinu í fyrsta sinn gegn Torquay United, sem er stýrt af hinum reynslumikla Neil Warnock.

Carroll er að stíga sín fyrstu skref í þjálfun eftir leikmannaferil þar sem hann lék meðal annars með Newcastle og Liverpool. Hann skoraði sex mörk í 12 leikjum fyrir Dagenham áður en hann meiddist.

Þessi breyting kemur aðeins tveimur vikum eftir að KSI keypti félagið og markar upphaf nýs kafla hjá Dagenham & Redbridge.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Arnar segir frá samtali við Jóhann Berg sem er orðaður við heimkomu – „Maður hefur ekki áhrif á það sem hann og fjölskylda hans gera“

Arnar segir frá samtali við Jóhann Berg sem er orðaður við heimkomu – „Maður hefur ekki áhrif á það sem hann og fjölskylda hans gera“
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Arnar opinberar hóp sinn fyrir ferðina til Kanada: Gylfi Þór og Aron Einar valdir – Orri Steinn snýr aftur

Arnar opinberar hóp sinn fyrir ferðina til Kanada: Gylfi Þór og Aron Einar valdir – Orri Steinn snýr aftur
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Slot finnur fyrir pressu en tekur henni fagnandi

Slot finnur fyrir pressu en tekur henni fagnandi
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Ummæli stjörnu Chelsea beint eftir tapið vekja athygli – Vildi ekki segja til um hvort hann yrði áfram

Ummæli stjörnu Chelsea beint eftir tapið vekja athygli – Vildi ekki segja til um hvort hann yrði áfram
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Eru klár í slaginn við Arsenal

Eru klár í slaginn við Arsenal
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

KSÍ tilkynnir leiktímann

KSÍ tilkynnir leiktímann
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ótrúleg atburðarás í Afríku – Marokkó dæmdur sigur tveimur mánuðum eftir úrslitaleikinn

Ótrúleg atburðarás í Afríku – Marokkó dæmdur sigur tveimur mánuðum eftir úrslitaleikinn
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Valtýr lýsir því sem hann varð vitni að innan um hóp fólks í Garðabæ – „Það var ekki neitt lítið sem gekk á“

Valtýr lýsir því sem hann varð vitni að innan um hóp fólks í Garðabæ – „Það var ekki neitt lítið sem gekk á“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Ævintýri Norðmanna lokið eftir skell í Portúgal

Ævintýri Norðmanna lokið eftir skell í Portúgal