fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
433Sport

Arne Slot mjög ósammála fullyrðingum Carragher

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 18. mars 2026 17:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur hafnað harðri gagnrýni Jamie Carragher sem sagði liðið vera einstaklingslið eftir slakt gengi á tímabilinu.

Liverpool hefur átt erfitt uppdráttar í titilbaráttunni og 1-1 jafntefli gegn Tottenham á Anfield um helgina jók á pressuna. Í kjölfarið sagði Carragher á Monday Night Football að liðið virkaði hvorki í sókn né vörn og hefði misst sitt fræga pressuspil.

Slot var spurður út í þessi ummæli fyrir leik gegn Galatasaray og svaraði ákveðið. „Ég hef verið sammála mörgu sem Jamie hefur sagt í vetur, en þessu er ég ósammála,“ sagði Slot.

Hann benti á að liðið hefði sýnt karakter þrátt fyrir mótlæti. „Eftir jöfnunarmarkið hefðu leikmenn getað gefist upp, en þeir gerðu það ekki. Við sáum að sjö til átta leikmenn voru komnir til baka í teiginn til að verjast og liðið hélt áfram að berjast.“

Slot hafnar því að Liverpool sé hópur einstaklinga sem vinni ekki saman. „Lið sem hefur gefist upp eða vinnur ekki saman sýnir ekki svona viðbrögð. Ég sé lið sem berst saman,“ sagði hann.

Hann viðurkennir þó að leikur liðsins sé ekki fullkominn enn. „Ef hann á við að við séum ekki fullkomlega samstilltir með boltann eða án hans, þá hefur hann rétt fyrir sér. Tengslin milli leikmanna eru ekki nógu sterk enn,“ bætti Slot við.

Að mati Slots snýst vandamálið ekki um hugarfar einstaklinga heldur að liðið þurfi meiri tíma til að þróa samspil sitt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Arnar segir frá samtali við Jóhann Berg sem er orðaður við heimkomu – „Maður hefur ekki áhrif á það sem hann og fjölskylda hans gera“

Arnar segir frá samtali við Jóhann Berg sem er orðaður við heimkomu – „Maður hefur ekki áhrif á það sem hann og fjölskylda hans gera“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Arnar opinberar hóp sinn fyrir ferðina til Kanada: Gylfi Þór og Aron Einar valdir – Orri Steinn snýr aftur

Arnar opinberar hóp sinn fyrir ferðina til Kanada: Gylfi Þór og Aron Einar valdir – Orri Steinn snýr aftur
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Slot finnur fyrir pressu en tekur henni fagnandi

Slot finnur fyrir pressu en tekur henni fagnandi
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Ummæli stjörnu Chelsea beint eftir tapið vekja athygli – Vildi ekki segja til um hvort hann yrði áfram

Ummæli stjörnu Chelsea beint eftir tapið vekja athygli – Vildi ekki segja til um hvort hann yrði áfram
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Eru klár í slaginn við Arsenal

Eru klár í slaginn við Arsenal
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

KSÍ tilkynnir leiktímann

KSÍ tilkynnir leiktímann
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ótrúleg atburðarás í Afríku – Marokkó dæmdur sigur tveimur mánuðum eftir úrslitaleikinn

Ótrúleg atburðarás í Afríku – Marokkó dæmdur sigur tveimur mánuðum eftir úrslitaleikinn
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Valtýr lýsir því sem hann varð vitni að innan um hóp fólks í Garðabæ – „Það var ekki neitt lítið sem gekk á“

Valtýr lýsir því sem hann varð vitni að innan um hóp fólks í Garðabæ – „Það var ekki neitt lítið sem gekk á“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Ævintýri Norðmanna lokið eftir skell í Portúgal

Ævintýri Norðmanna lokið eftir skell í Portúgal