fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
433Sport

Telur að vonarstjarna Arsenal missi af leikjum á næstunni – Þarf að mæta í skólann og taka próf

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 17. mars 2026 12:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Wayne Rooney telur að ungstirni Arsenal, Max Dowman, gæti misst af hluta lokakaflans í ensku úrvalsdeildinni vegna skólaprófa sinna.

Dowman, sem er aðeins 16 ára gamall, vakti mikla athygli um helgina þegar hann átti stóran þátt í 2-0 sigri Arsenal á Everton. Miðjumaðurinn kom inn á sem varamaður, lagði upp mark fyrir Viktor Gyökeres á 89. mínútu og skoraði sjálfur annað mark liðsins í uppbótartíma.

Markið gerði hann að yngsta markaskorara í sögu ensku úrvalsdeildarinnar og margir sérfræðingar hafa hrósað honum í hástert. John Terry gekk jafnvel svo langt að bera hann saman við Lionel Messi.

Rooney, sem sjálfur var aðeins 16 ára og 360 daga gamall þegar hann skoraði sitt fyrsta mark í deildinni, hrósaði Dowman einnig fyrir frammistöðuna. Hann benti þó á að unglingurinn þurfi nú að finna jafnvægi milli fótboltans og námsins.

„Þetta er frábært tækifæri fyrir hann að vera í kringum aðalliðið. Hann gæti orðið enskur meistari á meðan hann er enn í skóla,“ sagði Rooney í þættinum The Wayne Rooney Show.

Dowman er í 11. bekk og framundan eru svokölluð GCSE-próf sem fara venjulega fram í maí og júní. Rooney telur því að Arsenal þurfi mögulega að vera án hans í einhverjum leikjum á næstu vikum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Segir United að gleyma þessum kosti eftir helgina

Segir United að gleyma þessum kosti eftir helgina
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Fyrrum leikmaður Liverpool botnar ekkert í þessum ákvörðunum Slot í gær

Fyrrum leikmaður Liverpool botnar ekkert í þessum ákvörðunum Slot í gær
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

United talið ætla að kaupa fjóra leikmenn í sumar – Þetta eru stöðurnar sem horft er í

United talið ætla að kaupa fjóra leikmenn í sumar – Þetta eru stöðurnar sem horft er í
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Harður á sínu og vill ekki sjá það að Carrick taki við

Harður á sínu og vill ekki sjá það að Carrick taki við
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Messi og félagar tóku ekki í mál að spila á Spáni og ekki verður af leiknum

Messi og félagar tóku ekki í mál að spila á Spáni og ekki verður af leiknum
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Klókur Íslendingur vann tæpar 18 milljónir – „Ég var svo stressaður að ég bauð konu minni út að borða“

Klókur Íslendingur vann tæpar 18 milljónir – „Ég var svo stressaður að ég bauð konu minni út að borða“
433Sport
Í gær

Myndband: Uppákoma á BBC vekur athygli – Virtist óvart strá salti í sár Rooney

Myndband: Uppákoma á BBC vekur athygli – Virtist óvart strá salti í sár Rooney
433Sport
Í gær

Þetta er verðmiðinn á Wharton í sumar

Þetta er verðmiðinn á Wharton í sumar