fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
433Sport

Szoboszlai svekktur með stuðningsmenn Liverpool – Biður um betri og meiri stuðning

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 17. mars 2026 10:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dominik Szoboszlai, miðjumaður Liverpool, hefur hvatt stuðningsmenn liðsins til að standa betur með liðinu eftir að hafa tekið eftir því að margir yfirgefa leikvanginn áður en leikjum lýkur.

Szoboszlai sagði að leikmenn tækju eftir því þegar stuðningsmenn færu heim áður en leikurinn væri búinn, sérstaklega þegar liðið væri að lenda undir eða ganga í gegnum erfiða kafla.

Ummælin koma eftir 1-1 jafntefli gegn Tottenham á sunudag.

„Ég held að það hjálpi okkur ekki þegar fólk byrjar að fara heim eftir um 80 mínútur. Allir taka eftir því og þegar við fáum á okkur mark þá eru enn fleiri sem fara af vellinum,“ sagði Szoboszlai.

Hann sagðist skilja að stuðningsmenn væru svekktir yfir úrslitum en lagði áherslu á að liðið þyrfti á stuðningi þeirra að halda.

„Við viljum gera stuðningsmennina ánægða, það er ekki eins og við gerum mistök viljandi. Þeir mega vera reiðir, en þeir ættu að standa með okkur því við erum ein fjölskylda og þurfum á þeim að halda,“ bætti hann við.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Draumur Rashford gæti orðið að veruleika eftir kosningar helgarinnar

Draumur Rashford gæti orðið að veruleika eftir kosningar helgarinnar
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Sorglegt andlát – Tvítugur drengur fallinn frá eftir hetjulega baráttu við krabbamein

Sorglegt andlát – Tvítugur drengur fallinn frá eftir hetjulega baráttu við krabbamein
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum
U-beygja ekki í kortunum
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Var orðinn verulega pirraður á endurteknum spurningum fréttamanns í gær – Myndband

Var orðinn verulega pirraður á endurteknum spurningum fréttamanns í gær – Myndband
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Enn og aftur á meiðslalistanum – Meiðst tíu sinnum á sama stað

Enn og aftur á meiðslalistanum – Meiðst tíu sinnum á sama stað