fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
433Sport

Sorglegt andlát 22 ára karlmanns sem var í leit að næsta tækifæri – Dánarorsök liggur ekki fyrir

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 17. mars 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mexíkóskur knattspyrnumaður, Pablo Jurado Serafín, er látinn aðeins 22 ára gamall og hefur andlát hans vakið mikla sorg í knattspyrnuheiminum.

Fréttirnar hafa haft mikil áhrif í efstu deild Mexíkó, Liga MX, þar sem hann var talinn efnilegur markvörður. Jurado gekk til liðs við unglingastarf Deportivo Toluca árið 2019 og spilaði með U17, U20 og U23 liðum félagsins.

Hann var talinn lykilmaður í yngri flokkum félagsins, sem er eitt það sigursælasta í Mexíkó með 12 deildarmeistaratitla og tvo CONCACAF titla.

Á ferli sínum fór hann einnig tímabundið til Club Valle de Bravo í þriðju deild, áður en hann sneri aftur til Toluca. Þrátt fyrir að hafa ekki leikið með aðalliðinu var hann lengi hluti af félaginu.

Hann yfirgaf Toluca sumarið 2024 eftir að hafa lokið yngri flokka ferli sínum og var þá á leit að nýju félagi þegar hann lést. Dánarorsök hefur ekki verið gerð opinber.

Í yfirlýsingu frá Toluca kom fram að félagið syrgði sinn fyrrverandi leikmann og sendi fjölskyldu hans og vinum samúðarkveðjur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Stórliðin bíða í röðum og vilja fá bakvörð Newcastle í sumar

Stórliðin bíða í röðum og vilja fá bakvörð Newcastle í sumar
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Segir United að gleyma þessum kosti eftir helgina

Segir United að gleyma þessum kosti eftir helgina
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Sauð gjörsamlega upp úr í beinni útsendingu þegar Rikki G stýrði umræðum – „Þetta eru bara staðreyndir vitleysingurinn þinn“

Sauð gjörsamlega upp úr í beinni útsendingu þegar Rikki G stýrði umræðum – „Þetta eru bara staðreyndir vitleysingurinn þinn“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

United talið ætla að kaupa fjóra leikmenn í sumar – Þetta eru stöðurnar sem horft er í

United talið ætla að kaupa fjóra leikmenn í sumar – Þetta eru stöðurnar sem horft er í
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Sorglegt andlát – Tvítugur drengur fallinn frá eftir hetjulega baráttu við krabbamein

Sorglegt andlát – Tvítugur drengur fallinn frá eftir hetjulega baráttu við krabbamein
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum
U-beygja ekki í kortunum
433Sport
Í gær

Chelsea fær sekt og félagaskiptabann

Chelsea fær sekt og félagaskiptabann
433Sport
Í gær

Myndband: Uppákoma á BBC vekur athygli – Virtist óvart strá salti í sár Rooney

Myndband: Uppákoma á BBC vekur athygli – Virtist óvart strá salti í sár Rooney