fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
433Sport

Lineker skýtur á BBC

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 17. mars 2026 17:30

Gary Lineker. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gary Lineker virtist skjóta á BBC þegar hann ræddi um umfjöllun miðilsins um HM 2026.

Lineker hætti sem kynnir Match of the Day í maí eftir 26 ár í starfi, en Mark Chapman, Kelly Cates og Gabby Logan hafa tekið við hlutverkinu.

Hann starfar þó áfram í fjölmiðlum og er meðal annars með hlaðvarpið The Rest Is Football ásamt Alan Shearer og Micah Richards. Hlaðvarpið verður með daglega þætti í HM og verður staðsett í New York í samstarfi við Netflix.

BBC mun hins vegar vera með sína umfjöllun frá Salford.

„Hlutirnir hafa farið ágætlega. Ég er í fríi á laugardagum og verð í New York að fjalla um HM fyrir Netflix á meðan BBC verður í Salford,“ sagði Lineker um málið og á þar við að hann stýrði Match of the Day á laugardagskvöldum.

Samkvæmt fréttum fær Lineker mun hærri greiðslur hjá Netflix en hann gerði hjá BBC, þar sem hann var þó launahæsti starfsmaður miðilsins.

Þá greindi hann einnig frá því að hann muni stýra nýjum raunveruleikaþætti, The Box, sem fer í loftið á ITV síðar á árinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Telur að vonarstjarna Arsenal missi af leikjum á næstunni – Þarf að mæta í skólann og taka próf

Telur að vonarstjarna Arsenal missi af leikjum á næstunni – Þarf að mæta í skólann og taka próf
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Lekamál hjá Chelsea er aftur komið upp – Franskir miðlar með upplýsingar um liðið í kvöld

Lekamál hjá Chelsea er aftur komið upp – Franskir miðlar með upplýsingar um liðið í kvöld
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir helgina – Arsenal rúllar yfir deildina en West Ham fellur á markatölu

Ofurtölvan stokkar spilin eftir helgina – Arsenal rúllar yfir deildina en West Ham fellur á markatölu
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Ræðir fíkn sem fáir eru að tala um – Eyðilagði draum hans sem ungur maður

Ræðir fíkn sem fáir eru að tala um – Eyðilagði draum hans sem ungur maður
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Eitt af fórnarlömbunum lýsir vonbrigðum með forráðmenn Liverpool – „Tel að þeir hafi brugðist okkur“

Eitt af fórnarlömbunum lýsir vonbrigðum með forráðmenn Liverpool – „Tel að þeir hafi brugðist okkur“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Sauð gjörsamlega upp úr í beinni útsendingu þegar Rikki G stýrði umræðum – „Þetta eru bara staðreyndir vitleysingurinn þinn“

Sauð gjörsamlega upp úr í beinni útsendingu þegar Rikki G stýrði umræðum – „Þetta eru bara staðreyndir vitleysingurinn þinn“