

Úkraínumaðurinn Mykhailo Mudryk heldur áfram að æfa á fullu þrátt fyrir að hafa ekki spilað keppnisleik í um 18 mánuði.
Mudryk er grunaður um að hafa fallið á lyfjaprófi og hefur verið til hliðar vegna þess, það hefur þó aldrei verið staðfest.
Samkvæmt nýjum upplýsingum er Mudryk enn að æfa daglega með það að markmiði að snúa aftur í atvinnumennsku þegar aðstæður leyfa. Hann hefur þó haldið sér uppteknum utan vallar og eyðir meðal annars töluverðum tíma í tölvuleiki, sérstaklega leikinn Counter-Strike.
Nýlega sást Mudryk einnig æfa á æfingasvæði félags í neðri deildum Englands, í sjöundu deildinni, sem vakti mikla athygli á samfélagsmiðlum. Þar fóru sögusagnir fljótt á flug og sumir gerðu jafnvel grín að því að hann gæti endað sem spretthlaupari á Ólympíuleikum eða jafnvel sem Uber-bílstjóri.
Mudryk hefur nú fengið nýja lögfræðilega aðstoð og er orðinn skjólstæðingur lögmannsstofunnar Morgan Law, sem meðal annars varði Paul Pogba í hans máli.
Framtíð hans hjá Chelsea er þó enn óljós, þar sem félagið gæti rift samningi hans ef langt keppnisbann verður staðfest.