fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
433Sport

Höskuldur var í Mexíkó þegar ofbeldisalda braust út: Segir að þetta hafi vakið mestan óhug – „Þá væri ekki allur sannleikurinn að koma í upplýsingagjöfinni frá þeim“

433
Sunnudaginn 15. mars 2026 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Höskuldur Gunnlaugsson og Ívar Örn Árnason, leikmenn Breiðabliks, voru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni.

Höskuldur Gunnlaugsson fór með íslenska landsliðinu til Mexíkó á dögunum að spila æfingaleik við heimamenn. Þegar liðið var nýkomið út var stór glæpaforingi í landinu myrtur af yfirvöldum og varð í kjölfarið óöld í landinu. Óvissa var um leikinn um tíma.

„Það var framandi og pínu óhugnanlegt. Við vissum ekkert og ég held að þeir sem voru í starfsliðinu og fyrir utan þetta hafi ekki vitað neitt heldur. Það er ekki beint fordæmi fyrir þessu.

Svo kom í ljós að þetta væri svolítið staðbundið eftir svæðum og við stæðum utan þess. Samhliða því var öryggisgæslan hert og maður fann heldur betur fyrir því,“ sagði Höskuldur um málið.

„Þetta var pínu leiðinlegt upp á það að gera að við vorum í smá stofufangelsi þarna, af öryggisástæðum. Þannig vonir um að fá mexíkóska menningu beint í æð dvínuðu.“

Höskuldur var viss um tíma um að leikurinn færi ekki fram.

„Þegar þetta gerðist hélt ég að við værum bara að leita að fyrsta leiguflugi út úr Mexíkó. En svo þegar leið nær leiknum varð líklegra en ekki að við myndum spila.“

Mexíkóar höfðu mikið að sanna með því að halda leiknum á, en þjóðin heldur HM í sumar með Bandaríkjunum og Kanada.

„Það fannst mér óhugnanlegast, að yfirvöld væru aldrei að fara að gefa þennan æfingaleik því þá ertu bara að sýna að þú ráðir ekki við að halda utan um æfingaleik á móti Íslandi korter í HM. Ég leiddi hugann að því að þá væri ekki allur sannleikurinn að koma í upplýsingagjöfinni frá þeim.“

Mexíkó vann leikinn 4-0 og stemningin á vellinum var mikil.

„Það er mikill kúltúr fyrir fótbolta þarna og það voru mikil sýningarhöld fyrir leikinn. Það var lúðrasveit og einsöngvarar. Þetta var skemmtilegur viðburður. En þetta var gott lið sem við vorum að mæta.“

Þátturinn er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Draumur Rashford gæti orðið að veruleika eftir kosningar helgarinnar

Draumur Rashford gæti orðið að veruleika eftir kosningar helgarinnar
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Sorglegt andlát – Tvítugur drengur fallinn frá eftir hetjulega baráttu við krabbamein

Sorglegt andlát – Tvítugur drengur fallinn frá eftir hetjulega baráttu við krabbamein
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Messi og félagar tóku ekki í mál að spila á Spáni og ekki verður af leiknum

Messi og félagar tóku ekki í mál að spila á Spáni og ekki verður af leiknum
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Klókur Íslendingur vann tæpar 18 milljónir – „Ég var svo stressaður að ég bauð konu minni út að borða“

Klókur Íslendingur vann tæpar 18 milljónir – „Ég var svo stressaður að ég bauð konu minni út að borða“
433Sport
Í gær

Annar í viðræður við Arsenal

Annar í viðræður við Arsenal
433Sport
Í gær

Höskuldur lýsir því hvernig Ólafur kom inn í hlutina í Kópavogi – „Það þarf ekki að kollvarpa öllu“

Höskuldur lýsir því hvernig Ólafur kom inn í hlutina í Kópavogi – „Það þarf ekki að kollvarpa öllu“