

Tyrkneska stórliðið Beşiktaş hefur náð samkomulagi við Manchester United um kaup á markverðinum Altay Bayindir, samkvæmt miðlum í Tyrklandi.
Félagsskiptin eiga að vera að verðmæti um fimm milljónir evra og mun tyrkneski landsliðsmarkvörðurinn ganga til liðs við félagið þegar sumarglugginn opnar.
Bayindir gekk til liðs við Manchester United frá Fenerbahce árið 2023 en hefur átt erfitt uppdráttar á Old Trafford. Hann hefur að mestu verið varamarkvörður.
Beşiktaş hefur verið á höttunum eftir nýjum markverði og sér Bayindir sem lykilmann í uppbyggingu liðsins fyrir næsta tímabil. Endurkoma hans til Tyrklands gæti gefið honum reglulegan leiktíma á ný, sem hann hefur saknað í Englandi.
Manchester United er talið tilbúið að selja markvörðinn til að minnka hópinn og skapa svigrúm fyrir breytingar í sumar.