fbpx
Fimmtudagur 26.febrúar 2026
433Sport

Snýr aftur til Chelsea í sumar eftir misheppnaða dvöl í Þýskalandi

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 17. febrúar 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nicolas Jackson er á leið aftur til Chelsea þar sem Bayern München er ólíklegt til að virkja ákvæði um varanleg kaup á framherjanum.

Jackson, sem er 24 ára og landsliðsmaður Senegal, fór til Bayern síðasta sumar á lánssamningi sem var metinn á um 14,3 milljónir punda. Hann hafði þá misst sæti sitt hjá Chelsea undir stjórn Enzo Maresca, auk þess sem samkeppnin jókst með komu framherjanna João Pedro og Liam Delap.

Hjá Bayern vissi Jackson að hann yrði varamaður Harry Kane, fyrirliða enska landsliðsins, en vonaðist til að standa sig nógu vel til að tryggja sér varanleg félagaskipti.

Samkomulag félaganna kvað á um að lánið breyttist í varanleg kaup upp á 56,2 milljónir punda ef Jackson næði að spila 40 leiki í að minnsta kosti 45 mínútur í hvert sinn.

Það mark virðist nú utan seilingar og því bendir flest til þess að Jackson snúi aftur til Stamford Bridge þegar lánssamningnum lýkur. Chelsea þarf þá að ákveða næstu skref í máli framherjans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Þrjú stórlið á Englandi vilja öll fá sama kantmanninn

Þrjú stórlið á Englandi vilja öll fá sama kantmanninn
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Manchester félögin virðast ætla að berjast um tvo bita í sumar

Manchester félögin virðast ætla að berjast um tvo bita í sumar
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Vinicius Junior dansaði aftur og Real flaug áfram – Meistarar síðasta árs einig komnir í pottinn

Vinicius Junior dansaði aftur og Real flaug áfram – Meistarar síðasta árs einig komnir í pottinn
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Sesko ræðir um bekkjarsetu sína og hvað fer í gegnum huga hans

Sesko ræðir um bekkjarsetu sína og hvað fer í gegnum huga hans
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Stjórnarmaður Barcelona með áhugaverð ummæli um Erling Haaland

Stjórnarmaður Barcelona með áhugaverð ummæli um Erling Haaland
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Mál er varðar meinta nauðgun gegn barni fer ekki fyrir dóm

Mál er varðar meinta nauðgun gegn barni fer ekki fyrir dóm
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Umboðsmaður Wirtz vildi fara með hann í annað lið en Liverpool – Vonar að hann spili þar einn daginn

Umboðsmaður Wirtz vildi fara með hann í annað lið en Liverpool – Vonar að hann spili þar einn daginn
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

UEFA hafnar áfrýjuninni

UEFA hafnar áfrýjuninni
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Terry svekktur með að horft hafi verið framhjá sér – „Tóku ákvörðun um að hafa mig ekki með af einhverri ástæðu“

Terry svekktur með að horft hafi verið framhjá sér – „Tóku ákvörðun um að hafa mig ekki með af einhverri ástæðu“