

Markvörðurinn, Guy Smit, hefur gert samning við Knattspyrnudeild Njarðvíkur um að leika með liðinu út árið 2027, hið minnsta.
Guy er þrítugur markvörður sem er fæddur í Hollandi, en hefur leikið á Íslandi frá árinu 2020 þegar hann kom fyrst til Leiknis Reykjavíkur, þar sem hann hjálpaði þeim að komast upp úr Lengjudeildinni í þá Bestu.
Auk Leiknis hefur Guy leikið með Val, KR, ÍBV og nú síðast Vestra þar sem hann varð bikarmeistari síðastliðið sumar.